Til baka
two women shaking hands

Afmælisgjöf styrkir hjarta Reykjadals

Gló

Valdís Þorkelsdóttir færði Gló nýverið gjöf að upphæð 500.000 kr. í tilefni af 80 ára afmæli sínu. Í stað hefðbundinna afmælisgjafa bauð hún fjölskyldu, vinum og velunnurum að leggja uppbyggingu Reykjadals lið. Við það söfnuðust rúmlega 400.000 krónur og bætti Valdís sjálf við upphæðina svo gjöfin næmi alls hálfri milljón króna.

Við hjá Gló viljum færa Valdísi og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum innilegar þakkir fyrir hlýhuginn og stuðninginn.

„Það er einstaklega dýrmætt þegar einstaklingar velja að styðja starfsemi okkar með þessum hætti. Slíkur stuðningur er ómetanlegur og sýnir þann samhug sem samfélagið ber til Reykjadals,“ segir Kristín Dagmar, markaðs- og fjáröflunarstjóri Gló.

Gjöfin mun renna óskipt í byggingarsjóð fyrir nýjan matsal í Reykjadal. Nýr matsalur er eitt mikilvægasta uppbyggingarverkefni Reykjadals um þessar mundir og mun bæta aðstöðu, aðgengi og upplifun þeirra hundruða barna og ungmenna sem sækja sumarbúðir og aðra starfsemi í Reykjadal á hverju ári.

Söfnun fyrir nýjum matsal stendur enn yfir og geta áhugasamir kynnt sér verkefnið og lagt sitt af mörkum á sofnun.reykjadalur.is.

Styrkja

Arkitektateikning af viðbyggingu í Reykjadal