Hvar er félagið til húsa?
Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík. Sími: 535 0900. Sjá kort.
Hver er framkvæmdastjóri og hvar næ ég í hann?
Framkvæmdastjóri er Bergljót Borg, unnt er að ná í hana á skrifstofutíma í síma 535 0900
Hverjir geta leitað til Æfingastöðvarinnar?
Þú getur leitað til Æfingastöðvarinnar ef:
- Þú átt barn sem þarf aðstoð við að halda í við jafnaldrana í leik og starfi.
- Þú ert með hreyfihömlun og þarft aðstoð við líkamsþjálfun og hjálpartæki.
- Þú ert með Parkinsonsjúkdóm og vilt stunda líkamsrækt í hóp undir eftirliti reyndra sjúkraþjálfara.
- Þig vantar fræðslu, ráðgjöf eða upplýsingar um þjónustuna.
- Ef þú vilt komast í samstarf vegna hæfingar eða endurhæfingar.
Mundu að til að unnt sé að hefja þjálfun hjá Æfingastöðinni þarf beiðni frá lækni.
Hverjir geta sótt um dvöl í Reykjadal?
Reykjadalur er opinn öllum þeim sem ekki geta notið þess að sækja aðrar sumarbúðir vegna fötlunar sinnar. Í Reykjadal koma börn og ungmenni frá átta ára aldri, alls staðar að af landinu.
Hvert er netfang Styrktarfélagsins?
Netfangið er slf@slf.is. Netföng starfsfólks Styrktarfélagsins er að finna undir Um Styrktarfélagið, og starfsfólks Æfingstöðvarinnar undir Um Æfingastöðina.
Hvenær er opið?
Alla virka daga frá kl. 08:00 - 16:00
Hvar finn ég happdrættisnúmerið mitt?
Happdrættisnúmerið er kröfunúmerið sem birtist í heimabankanum þegar greiðsla hefur átt sér stað.
Tölvuútgáfa heimabankans sýnir þetta yfirleitt skýrust.
👉 Dæmi: Kröfunúmer 0301-66-0xxxxx → þá er xxxxx þitt happdrættisnúmer.
Ef þú finnur ekki númerið geturðu haft samband á slf@slf.is með nafni og kennitölu og við finnum það með þér.