Vinahópar Reyjadals
Vinahópar Reykjadals: Fullorðinsfrí með Reykjadal 2026
Sjöunda árið í röð stendur fullorðnu fötluðu fólki til boða að koma í sumarfrí að hætti Reykjadals. Þetta árið bjóðum við ungu fólki á aldrinum 20 ára til 30 ára að taka þátt í verkefninu (árgangar 1995 til og með 2004).
Verkefnið er styrkt af félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.
Umsóknarfrestur er 19. apríl 2026 og úthlutun mun fara fram stuttu seinna.
Það má heyra í forstöðufólki í síma: 5666234 eða í gegn um reykjadalur@glofelag.is
Vinsamlegast fyllið umsóknarformið samviskusamlega út.
Ævintýrabúðir Reykjadals
Mikilvægt er að umsóknin sé vandlega útfullt og berist fyrir 19. apríl 2026.
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband á reykjadalur@glofelag.is eða í síma 566-6234
Í sumar verða sumarbúðirnar haldnar á tveimur stöðum eftir aldri þátttakenda. Yngri hópurinn verður á Reykjum í Hrútafirði í júní og eldri hópurinn verður á Úlfljótsvatni í júlí.
Sumarbúðirnar eru fyrir börn fædd á árunum 2010-2018 með adhd og/eða einhverfu og eru einnig með stuðningsþarfir.
Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Reykjadalur í Mosfellsdal
Mikilvægt er að umsókn sé vandlega útfyllt og berist fyrir 1. febrúar 2026. Raðað er í hópa eftir aldri og félagslegum tengslum og því er ekki unnt að óska eftir ákveðinni dagsetningu dvalar.
Sumarbúðirnar eru ætlaðar fötluðum börnum og ungmennum á aldrinum 8–19 ára. Umsækjendur fæddir 2007 og 2008 koma í síðasta sinn í sumarbúðir Reykjadals.
Gjald fyrir 9 daga dvöl er 89.000 kr. Hægt er að skipta greiðslum niður og nýta frístundastyrk sveitarfélaga.
Úthlutun fer fram fyrir lok febrúar 2026 og verður tilkynnt með tölvupósti. Ef eitthvað er óljóst er velkomið að hafa samband á reykjadalur@glofelag.is eða í síma 566 6234.
Við hvetjum nýja gesti að skoða þetta til þess að undirbúa sig fyrir það að koma í sumarbúðir: