Erfðagjafir

Með erfðagjöf getur þú haft varanleg áhrif til góðs. Að ráðstafa hluta eigna þinna til málefnis sem þér er kært er leið til að styðja við starf sem heldur áfram að skipta máli til framtíðar. Erfðagjöf er meðvituð ákvörðun um að láta gott af sér leiða – á eigin forsendum og með skýrum vilja.

Hvað segja lögin?

  • Ef þú átt maka eða börn (skylduerfingja) getur þú ráðstafað þriðjungi eigna þinna með erfðaskrá.
  • Ef þú átt enga skylduerfingja getur þú ráðstafað öllum eignum þínum eins og þú kýst.
  • Erfðagjafir til almannaheillafélaga eru undanþegnar erfðafjárskatti.

Til að tryggja að vilji þinn nái fram að ganga þarf að gera erfðaskrá. llir lögráða einstaklingar geta gert erfðaskrá. Engin lágmarks- eða hámarksfjárhæð gildir um erfðagjafir. Hægt er að ánafna ákveðinni prósentu af arfi, tiltekinni fjárhæð eða tilgreindri eign.

Erfðagjafir hafa skipt verulegu máli í uppbyggingu starfsemi Gló og gert félaginu kleift að þróa aðstöðu og verkefni til framtíðar.

Upplýsingabæklingur

Hér getur þú nálgast upplýsingabæklinginn Eftir þinn dag, sem Almannaheill gaf út árið 2017, þar sem fjallað er um erfðagjafir til almannaheillafélaga og gerð erfðaskrár.

Sækja skrá

Ráðgjöf og nánari upplýsingar

Ef þú ert að íhuga erfðagjöf mælum við með að þú ráðfærir þig við lögfræðing við gerð erfðaskrár, svo tryggt sé að hún uppfylli lagaskilyrði og endurspegli vilja þinn skýrt.

Þú getur leitað til lögfræðings að eigin vali. Gló getur einnig aðstoðað við að koma þér í samband við fagaðila ef þess er óskað.

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við okkur í netfang: glo@glofelag.is