Fræðsla fyrir foreldra: Parastart
–
–
Verið velkomin á fræðslu fyrir foreldra og fjölskyldur fimmtudaginn 19. febrúar kl. 18 í Gló Æfingastöð. Hákon Atli Bjarkason, afreksmaður og þjálfari ÍFR, og Ingi Þór Einarsson, lektor við íþróttafræðideild HR, kynna Parastart verkefnið - ræða almennt um paralympic íþróttastarf og mikilvægi hreyfingar fyrir öll.
Viðburðurinn er skipulagður í tengslum við Parastart íþróttanámskeið sem er sérstaklega ætlað 8-15 ára börnum og ungmennum með hreyfihömlun. Markmiðið er að kynna fjölbreyttar íþróttir í öruggu og hvetjandi umhverfi með góðum búnaði og fyrirmyndum úr afreksíþróttum. Námskeiðið er einstakt tækifæri til að kynnast Paralympics-íþróttum og hvernig sé hægt er að nálgast hreyfingu á eigin forsendum.
Viðburðurinn er opinn fyrir öll - frítt inn! Hvetjum foreldra og fjölskyldur barna með hreyfihömlun á öllum aldri til að mæta.