Til baka
Hine examination

Hammersmith Infant Neurological Examination (HINE): Námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk í þjónustu við ungbörn

Háaleitisbraut 11-13, 108 Reykjavík

Viltu efla færni þína í mati á taugaþroska og hreyfiþroska ungbarna?

Gló Æfingastöð býður upp á tveggja daga námskeið í Hammersmith Infant Neurological Examination (HINE) dagana 12. og 13.maí 2026. HINE er staðlað matstæki fyrir ungbörn á aldrinum 2-24 mánaða. Prófið er einfalt og klínískt gagnlegt en það skoðar meðal annars heila-taugastarfsemi, líkamsstöðu, hreyfingar, vöðvaspennu og viðbrögð. Prófið gegnir mikilvægu hlutverki í snemmbærri greiningu og eftirfylgd barna í áhættu fyrir taugaþroskafrávik, þar á meðal heilalömun (CP).

Á námskeiðinu verður farið yfir fræðilegan grunn HINE, uppbyggingu prófsins, stigagjöf og túlkun, ásamt klínískum dæmum og verklegri þjálfun. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig HINE getur stutt fagfólk við snemmtæka greiningu, klíníska ákvarðanatöku og markvissa eftirfylgd í þjónustu við ungbörn og fjölskyldur þeirra.

Námskeiðið hentar sjúkraþjálfurum, læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sem starfar með ungbörnum og vill efla þekkingu sína og öryggi í taugaþroskamati.


Uppselt er á námskeiðið – Hægt er að skrá sig á biðlista á Abler.

Skráning á Abler

Dagskrá (birt með fyrirvara)

Kennarar: 

Dr. Frances Cowan, professor, Imperial College London / Bristol University, United Kingdom 

Dr. Leena Haataja, professor, University of Helsinki, Finland

Staðsetning: 

Gló Æfingastöð, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík 

Tengiliður: Kolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari – kolla@glofelag.is