Til baka
woman with horse

Hestar í starfi með fólki – HEAL námskeið

Faxabraut 2, 815 Þorlákshöfn

Gló Æfingastöð stendur fyrir námskeiðinu Hestar í starfi með fólki – HEAL, dagana 18.- 20. september 2026. Á námskeiðinu fá þátttakendur kynningu á HEAL-líkaninu (Human-Equine Alliance for Learning) og hvernig er hægt að vinna með hestinum í starfi með fólki. HEAL byggir á sex lykilþáttum tengslamyndunar og stuðlar að sjálfsvitund með þekkingu á taugasálfræði, núvitund og áhrifamætti hestsins.Um er að ræða þriggja daga námskeið sem skiptist í fræðilega og verklega hluta. 

Fyrir hverja er námskeið?

Námskeiðið er ætlað fjölbreyttum hópi þátttakenda, m.a. þeim sem starfa með fólki innand heilbrigðis-, menntunar-, og félagsþjónustu. Námskeiðið hentar einnig breiðum hópi fólks með ólíkan faglegan bakgrunn auk þeirra sem starfa innan hestamennsku.

Hámarksfjöldi á námskeiði eru 10 manns. Námskeiðið verður haldið með fyrirvara um nægilega þátttöku. Vinsamlegast athugið að námskeiðið fer fram á ensku. Skráning er hafin á Abler:

Skráning hér

Kennari: 

Norunn Kogstad geðlæknir stofnaði og rekur Lundehagen Gård í Noregi þar sem fram fer fræðsla, meðferðir og rannsóknir á áhrifum hesta í starfi með fólki. Norunn hefur sinnt geðlækningum með aðstoð hesta, staðið fyrir og veitt fræðslu fyrir fagfólk um að styðjast við hesta í starfi bæði í Noregi og víða erlendis. Í doktorsnámi sínu við sálfræðideild Norwegian University of Science and Technology rannsakar hún og teymi hennarhvernig samstarf við hestahefur áhrif á skjólstæðinginn og hestinn. Norunn lauk HEAL-þjálfun sinni í Bandaríkjunum árið 2013 og er einnig með EAGALA-réttindi. 

Dagsetning og staður

18.– 20. september 2026, nánari tímasetningar verða auglýstar síðar. 

Staður: Faxabraut 2, 815 Þorlákshöfn

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Námskeiðsgjald er 155.000 kr. Ekki er boðið upp á mat en kaffi og te er innifalið í námskeiðsgjaldi. Skráning er hafin á Abler. Skráningarfrestur er til 31. ágúst.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á sandra@glofelag.is.  Gló Æfingastöð áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

Nánari upplýsingar veitir Sandra iðjuþjálfi hjá Gló Æfingastöð: sandra@glofelag.is

Girl with helmet combing a horse