Til baka
Animated bee and Seahorse and a human brain

Námskeið fyrir iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara: Börn og andleg heilsa

Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík

[Námskeiðið er uppbókað!] 

Í annað sinn býður Gló Æfingastöð upp á hið vinsæla tveggja daga námskeið Börn og andleg heilsa undir leiðsögn Pernille Thomsen. Námskeiðið er ætlað iðjuþjálfum og sjúkraþjálfurum og er hámarksfjöldi þátttakenda 25 manns. Vinsamlegast athugið að námskeiðið fer fram á ensku. 

Skráning á Abler

Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu verður sjónum beint að samspili líkamlegra og sálfélagslegra þátta í tengslum við líðan barna og ungmenna. Lífsálfélagslegt sjónarhorn á heilsu (bio-psycho-social approach) leggur áherslu á að andleg vanlíðan getur birst í taugalífeðlisfræðilegum viðbrögðum, svo sem magaverk, skjálfta, hjartsláttarónotum, svefntruflunum og höfuðverk. Ýmsir sálfélagslegir þættir eins og sjálfstraust og sjálfsöryggi hafa áhrif  á líðan sem og umhverfi og aðstæður sem börn búa við.  

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á hvernig iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar geta með gagnreyndum leiðum stuðlað að betri andlegri líðan barna í gegnum hreyfingu, snertingu og öndun og þannig verið mikilvægur liður í þverfaglegri teymisvinnu.  

Auk þess verður fjallað um margbreytileika taugakerfisins í tengslum við kvíða, ADHD og einhverfu og hvernig iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar geta lagt sitt af mörkum til að bæta vellíðan barna og ungmenna með taugamargbreytileika (neurodiversity).   

 

Leiðbeinandi

Pernille Thomsen er lektor í sjúkraþjálfun og sérfræðingur í meðferð barna með ADHD, einhverfu, kvíða og streitutengd einkenni.  Pernille sérhæfir sig í lífssálfélagslegri nálgun (bio-psycho-social approach) til að bæta líðan og heilsu barna og ungmenna gegnum hreyfingu, snertingu og öndun. Aðferðina kallar hún „Seahorse Training“ sem vísar til þeirra möguleika sem við höfum með hreyfingu til að þess að hafa jákvæð áhrif á starfsemi taugakerfisins. 

Pernillefys.dk

Hagnýtar upplýsingar

  • Dagsetning: þriðjudagur 18. nóv. frá kl. 8-16 og miðvikudagur 19. nóv. frá kl. 8-12
  • Staðsetning: Gló Æingastöð, Háaleitisbraut 13 (4. hæð)
  • Hámarksfjöldi þátttakenda: 25 manns
  • Tungumál: Námskeiðið er kennt á ensku
  • Verð: 62.000 kr. - innifalið er hádegismatur og kaffi báða dagana 

Forföll skal tilkynna skriflega á: kolla@glofelag með minnst hálfsmánaðar fyrirvara. Gló Æfingastöð áskilur sér rétt til að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef afskráning berst eftir að skráningu er lokið.

 

Viðburðir framundan