Til baka
Parastart auglýsing

Parastart íþróttanámskeið fyrir 8-15 ára börn og ungmenni með hreyfihömlun

Háaleitisbraut 11-13, 108 Reykjavík

Gló Æfingastöð, ÍBR og ÍFR standa að Parastart íþróttanámskeiði sem er sérstaklega ætlað 8-15 ára börnum og ungmennum með hreyfihömlun. Markmiðið er að kynna fjölbreyttar íþróttir í öruggu og hvetjandi umhverfi með góðum búnaði og fyrirmyndum úr afreksíþróttum. 

Námskeiðið er einstakt tækifæri til að kynnast Paralympics-íþróttum og hvernig hægt er að nálgast hreyfingu á eigin forsendum. Engin krafa er um fyrri þátttöku í íþróttum – aðeins opinn hugur og vilji til að prófa. Athugið: Námskeiðið er miðað við þátttakendur sem uppfylla flokkunarviðmið sambærileg þeim sem notuð eru í Paralympics-íþróttum og er því ekki sniðið að þörfum barna með þroskaskerðingar. Foreldrum er velkomið að hafa samband ef þau eru óviss hvort námskeiðið henti þeirra barni í netfang: glo@glofelag.is

Námskeiðið hefst á kynningu fyrir foreldra. Í kjölfarið fá þátttakendur tækifæri til að prófa badminton, borðtennis, bogfimi, körfubolta, rugby og frjálsar íþróttir, auk þess að kynnast og prófa íþróttahjólastóla, frame running-hjól og annan sérhæfðan búnað sem styður við þátttöku hreyfihamlaðra barna og ungmenna í íþróttum.

Yfirþjálfari er Hákon Atli Bjarkason, sem leiðir námskeiðið ásamt sérhæfðum íþróttaþjálfurum í hverri íþróttagrein. Að auki verða sjúkraþjálfari og iðjuþjálfi frá Gló Æfingastöð með í för og styðja þátttakendur í gegnum allt námskeiðið.

  • Mismunandi íþróttahús á höfuðborgarsvæðinu með gott aðgengi
  • Skráning fer fram á Abler
  • Verð: 15.000 kr. Hægt er að nota frístundastyrk.
  • Takmarkað pláss – tryggðu þátttöku tímanlega!

    Skráning á Abler

Birt með fyrirvara um breytingar:

Dagskrá

Opin foreldrafræðsla: Parastart 
Fim. 19. febrúar kl. 18:00 
Gló Æfingastöð, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík

Badminton og borðtennis 
Þri. 24. febrúar kl.15:00-16:00 
TBR, Gnoðarvogur 1, 104 Reykjavík

Fim. 26. febrúar kl.15:00-16:00 
TBR, Gnoðarvogur 1, 104 Reykjavík

Rugby (hjólastólar á staðnum) 
Þri. 3. mars kl. 15:00-16:00 
Sæmundarskóli, Gvendargeisli 168, 113 Reykjavík

Fim. 5. mars kl. 15:00-16:00 
Sæmundarskóli, Gvendargeisli 168, 113 Reykjavík

Körfubolti (hjólastólar á staðnum)
Þri. 10. mars kl.14:15-15:15 
ÍR, Skógarsel 12a, 109 Reykjavík

Fim. 12. Mars kl.14:15-15:15 
ÍR, Skógarsel 12a, 109 Reykjavík

Bogfimi 
Þri. 17. Mars kl. 15:00-16:00 
ÍFR, Hátún 14, 105 Reykjavík

Fim. 19. Mars kl. 15:00-16:00 
ÍFR, Hátún 14, 105 Reykjavík

Frjálsar 
Mán. 23.mars kl. 15:00-16:00 
Laugardalshöll, Engjavegur 8, 104 Reykjavík

Mið. 25.mars kl. 15:00-16:00 
Laugardalshöll, Engjavegur 8, 104 Reykjavík