Ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra - Háskólinn á Hólum og Gló Æfingastöð
Dýr í starfi með fólki – hvernig og hvers vegna?
Háskólinn á Hólum og Gló Æfingastöð standa saman að alþjóðlegri ráðstefnu um dýrastudda nálgun í starfi með fólki, sem haldin verður á Hólum í Hjaltadal dagana 15.–16. maí 2026.
Ráðstefnan er ætluð öllu fagfólki og áhugafólki sem vill dýpka skilning sinn á því hvernig dýr geta stutt við vellíðan, þátttöku, nám og þroska í starfi með fólki. Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast nýjustu þekkingu, ólíkum sjónarhornum og reynslu þeirra sem hafa sérhæft sig á þessu sviði. Sérstök áhersla verður lögð á starf með hestum.
Meðal fyrirlesara verða sérfræðingar og fagfólk frá Íslandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Svíþjóð og Þýskalandi, auk kynninga frá Finnlandi, Noregi og Danmörku.
Ráðstefnan verður haldin á ensku og býður upp á vettvang fyrir fræðslu, samtal og tengslamyndun þvert á faggreinar og lönd. Sætaframboð er takmarkað, svo mikilvægt er að tryggja sér pláss tímanlega. Þátttökugjaldi er stillt í hóf með það að markmiði að sem flestir geti tekið þátt og fræðst um þetta áhugaverða og vaxandi svið.
Verð:
Rástefna + matur + gisting eina nótt með morgunmat = 47.000
Ráðstefna + matur = 32.000
Allar nánari upplýsingar veitir Háskólinn á Hólum í netfang: audinga@holar.is