Á Gló Æfingastöð er unnið eftir líkani sem kallast F-orðin. Þau eru styrkleikamiðuð nálgun sem leggur áherslu á það sem börn geta gert, hvaða tækifæri þau fá og hvernig umhverfið getur stutt við þau, fremur en að einblína eingöngu á greiningar eða takmarkanir.
F-orðin hjálpa okkur að horfa á hvern og einn út frá þeirra styrkleikum, áhugamálum og því sem veitir þeim ánægju í daglegu lífi. Markmiðið er að styðja börn og ungmenni til þátttöku í fjölskyldulífi, leik, skóla og samfélagi á þeirra eigin forsendum.
F-orðin voru mótuð af kanadísku rannsóknarmiðstöðinni CanChild sem sérhæfir sig í rannsóknum á þroska og þátttöku fatlaðra barna. Þau byggja á ICF-ramma Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Færni
Að geta gert það sem máli skiptir er mikilvægara en hvernig það er gert. Við þurfum ekki öll að gera eins!

Fjör
Höfum gaman! Byggjum á styrkleikum og styðjum þátttöku í því sem vekur áhuga.

Fjölskylda
Fjölskyldur þekkja börnin sín best. Hlustum á þær og tökum eftir því sem þær segja. Sýnum þeim virðingu og traust.

Form
Finnum skemmtilegar leiðir til að efla líkamlega hreysti, andlega heilsu og vellíðan.

Félagar/vinir
Við höfum öll þörf fyrir að taka þátt og tilheyra. Sköpum tækifæri til að rækta félagsleg tengsl og vináttu.

Framtíð
Dagurinn í dag leggur grunn að framtíðinni. Könnum leiðir, prófum og sjáum möguleikana til að láta drauma rætast.
Fyrir foreldra og fjölskyldur
Reynsla, innsýn og þekking foreldra og fjölskyldu skiptir miku máli þegar kemur að þroska barnsins. Á Gló Æfingastöð leggjum við áherslu á góða samvinnu við fjölskyldur, þar sem markmið og leiðir eru mótuð í samtali við þau sem þekkja barnið best.
F-orðin geta hjálpað til við að kortleggja hvað skiptir máli: Hvað virkar? Hvað veitir gleði? Þannig verða markmið og næstu skref oft skýrari fyrir alla fjölskylduna.
F-orðin hjálpa okkur einnig að færa stuðning við þroska og þátttöku inn í daglegt líf barnsins fjölskyldunnar. Smáar stundir og einföld samskipti á hverjum degi byggja upp tengsl, sjálfstraust og færni barnsins til framtíðar. Þessar stundir eiga sér stað alls staðar – heima, í leik, í samveru og í daglegum athöfnum.
Frekara efni og gagnlegar leiðir
F-orðin byggja á áratuga rannsóknum á þroska barna og þjónustu við börn með stuðningsþarfir. þau voru sett fram af fræðimönnum við kanadísku rannsóknarmiðstöðina CanChild Research Centre við McMaster University og er í dag víða höfð að leiðarljósi í starfi með börnum og fjölskyldum.

Á vef CanChild er að finna fjölbreytt efni sem getur hjálpað fjölskyldum og fagfólki að nýta F-orðin í daglegu lífi. Þar má meðal annars finna reynslusögur, hagnýt verkfæri og fræðsluefni sem fjallar nánar um hvert F-orð og hvernig hægt er að nýta hugmyndafræðina í framkvæmd.
Rosenbaum, P., & Gorter, J.W. (2012). The ‘F-words’ in childhood disability: I swear this is how we should think! Child: Care, Health and Development, 38(4), 457 – 463. DOI: 10.1111/j.1365-2214.2011.01338.x; CanChild’s F-words Knowledge Hub: www.canchild.ca/f-words