Þú ert að koma í Reykjadal! Vá hvað við erum spennt að vera með þér, leika og skapa minningar saman. Hérna eru upplýsingar fyrir þig. Við hvetjum öll sem eru að koma í fyrsta skipta að kynna sér Reykjadal og senda á okkur ef einhverjar spurningar koma upp.
Reykjadalur er rekinn af Gló stuðningsfélagi og býður upp á sumarbúðir, vetrardvalir og önnur tómstundartækifæri. Ekkert er ómögulegt í Reykjadal, ævintýrin eru endalaus og enginn dagur er eins. Reykjadalur er uppáhaldsstaður margra <3
Hvað er gert í Reykjadal?

Sund eins oft og þú vilt!

Hestarnir okkar elska klapp og reiðtúra

Við gerum brennu, syngjum og grillum

Fótbolti á sparkvellinum!

Við förum í tvær ferðir í rútu
Við gerum saman dagskrá fyrir hvern dag og þú mátt koma með hugmyndir! Vinsælt er að hrekkja starfsfólkið, búa til slím, skapa risalistaverk eða halda jólin í júlí. Bara allt sem okkur dettur í hug!
Við eigum frábæra nágranna sem bjóða okkur í jarðaberjatýnslu, lautarferðir og að heimsækjum dýrin þeirra. Einn nágranni okkar á líka risastóra brekku þar sem hægt er að gera risa-rennibraut.
Skemmtilegast er alltaf samveran, að eiganst vini og njóta í sumarbúðunum. Frábært leiksvæði, dót, spil og bækur. Það er góður matur á hverjum degi og líka kvöldkaffi áður en þú ferð að sofa.

Á hverju kvöldi er kvöldvaka, upp á sviði, úti við brennuna eða jafnvel í sundlauginni. Það er líka mjög gaman þegar það koma leynigestir í heimsókn í Reykjadal.
Enginn dagur er eins!
Aðstaðan
Undirbúningur
- Það má koma í heimsókn í Reykjadal ef þú vilt kanna svæðið fyrst
- Við mælum með að gera dagatal til þess að telja niður í daginn sem þú ferð í sumarbúðir
- Það er gott að skoða myndir, hér á vefsíðunni, á samfélagsmiðlum eða horfa á Reykjadalslagið á Youtube
-
Það er skemmtilegt að pakka í töskur! Finna uppáhalds náttfötin og sængurver, velja bangsa og fylla út fatalistann og lyfjablaðið
Fatalisti Lyfjablað
- Það má alltaf hafa samband og fá að vita hvaða starfsmaður fylgir til stuðnings eða aðrar upplýsingar sem gætu hjálpað við undirbúning
Þegar þú mætir í Reykjadal
Þegar þú mætir í Reykjadal þá tökum við fagnandi á móti þér og þeim sem skutlar þér.
Fóstran þín tekur á móti þér við innganginn og sýnir þér herbergið þitt, þið gangið saman um svæðið síðan er ykkur boðin kaffi og kaka. Þá er tilvalið að spjalla saman og kynnast. Svo kveður þú þau sem skutluðu þér og sumarbúðaævintýrið hefst.
Fóstrurnar geta hjálpað þér með allt sem þú vilt. Þau eru stuðningurinn þinn þegar þú þarft aðstoð yfir daginn, passa að þér líði vel, styðja þig að eignast vini og eru alltaf til í leiki og fjör.
Á nóttinni passa næturvaktirnar öll sem eru í sumarbúðunum, þau eru snillingar að segja sögur, vera til staðar ef þú vaknar og græja góðan morgunmat. Svo erum við með frábært eldhússtarfsfólk sem eldar matinn, eru alltaf til í spjall og hugmyndir frá ykkur af góðum mat til að baka eða elda.
Í Reykjadal vinnur skemmtilegt og ábyrgt ungt fólk sem er spennt að verja sumrinu sínu saman með þér og öllum sem koma í Reykjadal
Minningar
Í Reykjadals-dagbókinni þinni eru myndir frá hverjum degi og myndir af þér og vinum þínum.
Dagbókin getur hjálpað þér að segja frá dvölinni þegar þú kemur heim, þú getur sýnt fjölskyldunni þinni og vinum dagbókina. Dagbókin er líka til að rifja upp ævintýrin í Reykjadal og líka til þess að undirbúa sig fyrir næstu Reykjadalsdvöl.
Mörg sem hafa komið í Reykjadal safna dagbókunum sínum og eiga dýrmætt safn af minningum.
Má ég koma aftur?
Auðvitað! Enn það er svo langt í næsta sumar þannig vonandi kemstu í vetrardvöl, þær eru svo skemmtilegar. Þá gistir hópurinn í 2 nætur í Reykjadal, frá föstudegi til sunnudags. Það er ein vetrardvöl í boði á haustönn og ein á vorönn.
Á sumrin reynum við að hafa hópana eins þannig þú hittir sömu Reykjadals-félagana <3 En það má alltaf láta okkur vita ef þú óskar að vera með einhverjum í hóp eða herbergi.
Við bjóðum líka öllum gestum sumarsins á Lokaball í Reykjadal, í ágúst þegar síðasti hópurinn er farinn heim. Þá fögnum við saman sumrinu, dönsum og njótum samverunnar. Í desember þá er jólaball í Reykjadal, vonandi kemstu á það!