Fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök:

Glóandi samstarf sem skapar raunveruleg áhrif

Við trúum því að öflugt samstarf byggist á sameiginlegum gildum og markmiðum. Við bjóðum fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum upp á ýmis samstarfstækifæri sem styðja við markmið þeirra og skapa um leið jákvæð og skýr samfélagsleg áhrif.

Af hverju að vinna með Gló?

Samstarf við Gló getur:

  • styrkt samfélagslega ábyrgð fyrirtækisins
  • aukið þátttöku starfsfólks og teymisanda
  • skapað jákvæð og sýnileg samfélagsleg áhrif
  • tengt fyrirtæki við málefni sem skiptir sköpum fyrir fjölskyldur um land allt
girl on horse

Leiðir til að vinna með Gló

Verða samstarfsaðili verkefnis

Fyrirtæki geta orðið samstarfsaðilar Gló og stutt við fjölbreytt verkefni á okkar vegum. Samstarfið getur til dæmis tengst ákveðnum verkefnum, viðburðum eða starfsemi Reykjadals eða Gló Æfingastöðvar.

Styðja með gjöfum eða búnaði

Fyrirtæki geta lagt sitt af mörkum með gjöfum, búnaði eða vinnuframlagi sem styður við starfsemi Gló, uppbyggingu á aðstöðu eða til sérstakra verkefna. Slíkur stuðningur hefur bein og áþreifanleg áhrif fyrir börn og ungmenni sem taka þátt í starfinu.

Samfélagssamstarf fyrirtækja

Samstarf við Gló getur verið hluti af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja. Stuðningur getur verið í formi styrkja, gjafa, vöruframlags eða sameiginlegra átaksverkefna.

Þátttaka starfsfólks

Samstarf getur einnig skapað tækifæri fyrir starfsfólk fyrirtækja til að taka þátt í góðu málefni – til dæmis með sjálfboðaliðastarfi, vinnustaðasöfnun eða öðrum sameiginlegum verkefnum sem efla teymisanda.

Skapandi samstarf

Við erum alltaf opin fyrir nýjum hugmyndum að samstarfi. Fyrirtæki geta til dæmis staðið fyrir viðburðum eða söfnunarátökum sem vekja athygli á starfi Gló og styðja við verkefni sem skapa tækifæri í stað takmarkana.

Spjöllum saman

Okkur finnst alltaf gaman að ræða nýjar hugmyndir eða möguleika á samstarfi. Hafið samband og við skoðum saman hvernig við getum skapað samstarf sem hentar ykkar fyrirtæki og starfsfólki.

Nánari upplýsingar veitir:

Kristín Dagmar Jóhannesdóttir
Markaðs- og fjáröflunarstjóri Gló
📞 +354 836 3923
📩 kristindagmar@glofelag.is

smiling boy

Dæmi um samstarfsverkefni Gló:

kids by the christmas tree

TVG-Zimsen er samstarfsaðili Gló með flutningi á Kærleikskúlunni til landsins og til söluaðila okkar víða um land.

 

Fjöldi fagfólks og fyrirtækja studdi okkur þegar kom að framkvæmdum, kaupum á tækjabúnaði, uppsetningu og ráðgjöf við endurbætur laugarinnar í Reykjadal. Við viljum þakka sérstaklega Bjargarlögnum, Hitatækni, S. Hermann og Tengi fyrir faglega ráðgjöf og stuðning í öllu ferlinu.

man working on pipes

 

 

men standing by a bbq

Fjöldi félagasamtaka styðja okkur með kaupum á búnaði. Kiwanisklúbburinn Höfði gaf nýlega nýtt útigrill og sófa í Reykjadal. 

Tæknideild Deloitte á Íslandi hélt góðgerðadag fyrir jólin og pakkaði Kærleikskúlunni 2025 af elju og alúð ásamt frábæru starfsteymi Ás styrktarfélags.

people packing Globe of Goodwill