Til baka
Kona brosir í átt að barni sem snýr baki

Gló Æfingastöð leitar að öflugum sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa

Æfingastöð

Gló Æfingastöð óskar eftir að ráða öfluga iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara sem hafa áhuga á fjölbreyttu starfi með börnum og fjölskyldum þeirra, þátttöku í stefnumótun og nýsköpun í starfi. Um er að ræða tvær 100% stöður, en möguleiki er á minna starfshlutfalli ef þess er óskað.

Um okkur

Gló Æfingastöð er þjónustu- og þekkingarmiðstöð í snemmtækri íhlutun og endurhæfingu barna og ungmenna. Hjá okkur starfar öflugt teymi sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og aðstoðarfólks með það markmið að efla þátttöku barna og ungmenna.

Hjá okkur fer m.a. fram öflugt hópastarf, þjálfun í sundlaug, sjúkraþjálfun á hestbaki og iðjuþjálfun með hund. Þjálfarar fara mikið út í leikskóla og skóla með ráðgjöf og íhlutun og erum einnig í samstarfi við íþróttahreyfinguna. 

Starfskjör og starfsandi

  • Fjölskylduvænn vinnustaður með 36 tíma vinnuviku
  • Góðir möguleikar á sveigjanleika í starfi
  • Frábær starfsandi og öflugt starfsmannafélag - „Frú Margrét“ stendur fyrir skemmtilegum viðburðum allt árið
  • Sterk endurmenntunarstefna, m.a. styrkir úr Starfsmenntunarsjóði og Starfsþróunarsetri BHM
  • Laun skv. gildandi kjarasamningi BHM og fjármálaráðherra, ásamt nýjum stofnanasamningum
  • Frí á launum milli jóla og nýárs

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta áskilin

Nýlegar fréttir