Til baka
two people smiling

EMC markaðsrannsóknir styrkja Gló á aðventunni

Gló

Annað árið í röð afhenda EMC markaðsrannsóknir Gló stuðningsfélagi veglegan styrk upp á 700.000 krónur fyrir hönd svarenda í rannsóknum fyrirtækisins. Styrkurinn rennur til starfsemi Gló, sem vinnur að aukinni samfélagsþátttöku barna og ungmenna með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir.

Gísli Steinar Ingólfsson, framkvæmdastjóri EMC rannsókna, heimsótti okkur og afhenti Bergljótu Borg, framkvæmdastjóra Gló, styrkinn fyrir hönd fyrirtækisins. Við þetta tækifæri keypti hann einnig Kærleikskúlur fyrir viðskiptavini EMC, og styrkir þar jafnframt starfsemi Reykjadals.

Gló þakkar EMC markaðsrannsóknum innilega fyrir stuðninginn.