Til baka
Páll Óskar og tveir Æskuvinir Reykjadals

Endurfundir Æskuvina Reykjadals 2026

Það er komið að öðrum hittingi Æskuvina Reykjadals og við hlökkum til að bjóða ykkur aftur í dalinn, sunnudaginn 23. ágúst kl. 17:00–21:00.

Æskuvinir Reykjadals er nýtt tómstundatækifæri á vegum Reykjadals fyrir þau sem eiga minningar úr dalnum. Klúbburinn er ætlaður fólki 30 ára og eldri sem dvaldi í Reykjadal sem börn eða ungmenni. Markmiðið er að viðhalda tengslum og rækta vináttu með árlegum hittingum og virkri þátttöku í starfi Gló. 

Mæting er á milli kl. 17:00 og 18:00 í Reykjadal í Mosfellsdal. Dagskráin hefst með grillveislu og að því loknu gefst gestum kostur á að fara í sund eða spila saman. Að venju lýkur kvöldinu með kvöldvöku og notalegri samveru. Dagskrá lýkur um kl. 21:00.

Stuðningur

Gert er ráð fyrir að gestir mæti með stuðning ef þess er þörf. Starfsfólk Gló verður á staðnum til að veita aðstoð og félagslegan stuðning eftir þörfum, svo allir geti notið kvöldsins á öruggan og notalegan hátt. Þau sem þurfa frekari stuðning geta haft samband við okkur í netfang reykjadalur@glofelag.is 

Skráning

Skráning á hitting Æskuvina Reykjadals, sunnudaginn 23. ágúst 2026, fer fram á Abler:

Skráning á Abler

Þátttökugjald er 3.900 kr. og gildir jafnframt sem árlegt félagsgjald í Gló stuðningsfélagi. Félagsmenn sem greitt hafa árgjald fá frítt á viðburðinn. Þátttaka í viðburði telst staðfest þegar greiðsla reiknings hefur borist. 

Hagnýtar upplýsingar

  • Staðsetning: Reykjadalur í Mosfellsdal
  • Tímasetning: sunnudagur 23. ágúst kl. 17-21
  • Munið eftir sundfötunum!

Nýskráning í klúbb Æskuvina Reykjadals fer fram hér að neðan

People smiling in the sun at Reykjadalur

Nýskráning í klúbb Æskuvina Reykjadals

Nafn
Heimilisfang
Gerast meðlimur