Til baka
F-orðin veggspjald

F-orðin í þroska og þátttöku í nýjum búningi hjá Gló

Æfingastöð

Í samstarfi við auglýsingastofuna Tvist hefur Gló þróað nýtt sjónrænt efni fyrir F-orðin í þroska og þátttöku í tilefni af 70 ára afmæli Gló Æfingastöðvar í ár. Markmiðið var að skapa útlit sem endurspeglar betur fjölbreytnina, leikgleðina og hlýjuna sem einkennir starfsemi Gló og nálgun F-orðanna sjálfra. 

F-orðin eru mikilvæg leiðarljós í starfi Gló Æfingastöðvar og hjálpa okkur að horfa á styrkleika, þátttöku og það sem skiptir raunverulega máli í lífi barna og ungmenna. Markmiðið er að styðja börn og ungmenni til þátttöku í fjölskyldulífi, leik, skóla og samfélagi — á þeirra eigin forsendum.

F-orðin eru styrkleikamiðað líkan sem leggur áherslu á sex lykilorð: færni, fjölskyldu, form, fjör, félaga/vini og framtíð. Nálgunin færir fókusinn frá takmörkunum yfir í þátttöku, tengsl, styrkleika og lífsgæði í daglegu lífi barna og fjölskyldna.

Nánar um F-orðin

Færni F-orðin veggspjald

 

Fjölskylda F-orðin veggspjald

 

Form F-orðin veggspjald

 

Fjör F-orðin veggspjald

 

Félagar F-orðin veggspjald

 

Framtíð F-orðin veggspjald