Til baka
Three people signing documents

Gengið hefur verið frá samningi vegna reksturs Ævintýrabúða og Vinahópa Reykjadals

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirrituðu á föstudag samning við Gló stuðningsfélag um styrk sem rennur alfarið til starfsemi Ævintýrabúða og Vinahópa Reykjadals og tryggir rekstur verkefnanna í ár.

Ævintýrabúðirnar eru fyrir börn og ungmenni með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu og/eða andlegum áskorunum og Vinahópar Reykjadals eru sumardvöl og tómstundaúrræði fyrir ungt fatlað fólk á aldrinum 20–30 ára. Þetta er mikilvæg viðbót við reglubundið starf sumarbúða Reykjadals í Mosfellsdal sem er ætlað fötluðum börnum og ungmennum á aldrinum 8–19 ára. Síðastliðið sumar voru Ævintýrabúðirnar staðsettar í Hlíðardalsskóla í Ölfusi en ekki er víst hvaða húsnæði verður fyrir valinu í sumar.

Verkefnin Ævintýrabúðir og Vinahópar voru sett á laggirnar fyrir sex árum í heimsfaraldri COVID-19 með stuðningi ráðuneytanna. Ánægja með verkefnin hefur verið mikil og eftirspurnin stöðugt vaxandi. Á síðasta ári sóttu 88 börn og ungmenni Ævintýrabúðirnar og 83 tóku þátt í Vinahópunum. Við leggjum áherslu á að mæta sem flestum í sumar og haust, þrátt fyrir breyttar forsendur þar sem heildarstyrkurinn er lægri en undanfarin ár.

Unnið er markvisst að undirbúningi og verður opnað fyrir umsóknir eins fljótt og auðið er. Við vitum að mörg bíða spennt eftir að geta sótt um og leggjum okkur fram um að hraða ferlinu, þar sem skipulagning sumarsins er seinna á ferðinni en venja er. Við munum birta allar upplýsingar á vef Gló og samfélagsmiðlum okkar.