Gló Æfingastöð leitar að öflugum iðjuþjálfa í fjölbreytt starf
Æfingastöð
Gló Æfingastöð óskar eftir að ráða öflugan iðjuþjálfa í fjölbreytt starf með börnum og fjölskyldum þeirra, þátttöku í stefnumótun og nýsköpun í starfi. Um er að ræða 100% stöðu, en möguleiki er á minna starfshlutfalli ef þess er óskað.
Um okkur
Gló Æfingastöð er þjónustu- og þekkingarmiðstöð í snemmtækri íhlutun og endurhæfingu barna og ungmenna. Hjá okkur starfa iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar í öflugu teymi með aðstoðarfólki og skrifstofu. Við leggjum áherslu á fjölskyldumiðaða þjónustu og samstarf við nærumhverfi með það að marki að efla þátttöku barna og ungmenna.
Á Gló Æfingastöð fer meðal annars fram öflugt hópastarf, þjálfun í sundlaug, sjúkraþjálfun á hestbaki og iðjuþjálfun með hund. Þjálfarar fara mikið út í leikskóla og skóla með ráðgjöf og íhlutun og erum einnig í samstarfi við íþróttahreyfinguna.
Starfskjör og starfsandi
- Fjölskylduvænn vinnustaður með 36 tíma vinnuviku
- Góðir möguleikar á sveigjanleika í starfi
- Frábær starfsandi og öflugt starfsmannafélag - „Frú Margrét“ stendur fyrir skemmtilegum viðburðum allt árið
- Sterk endurmenntunarstefna, m.a. styrkir úr Starfsmenntunarsjóði og Starfsþróunarsetri BHM
- Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi BHM og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs, auk stofnanasamnings Gló stuðningsfélags við Iðjuþjálfafélag Íslands.
- Gefið er frí á launum milli jóla og nýárs
Hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta áskilin
Við hvetjum öll til að sækja um!
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2026 í netfang gunnhildur@glofelag.is
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi Gló Æfingastöðvar í netfang: gunnhildur@glofelag.is eða síma 6950272.
Nýlegar fréttir
Æfingastöð
Æfingastöð