Til baka
Four people posing

Gló átti góðan og uppbyggilegan fund með mennta- og barnamálaráðherra

Fulltrúar Gló stuðningsfélags áttu í dag góðan fund með mennta- og barnamálaráðuneytinu þar sem farið var yfir stöðu mála. Þar var rætt um Ævintýrabúðirnar sem félagið hefur staðið að síðustu sex ár með stuðningi ráðuneytisins. Verkefnið er sérhæft tómstundatækifæri fyrir börn og ungmenni með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu og/eða andlegum áskorunum.

Við erum þakklát fyrir opið og málefnalegt samtal og þann skilning sem kom fram á mikilvægi starfseminnar. Einnig viljum við koma skýrt á framfæri að ráðherra og sérfræðingar innan ráðuneytisins hafa ávallt sýnt verkefninu mikinn stuðning og velvilja þó töf hafi orðið á svörum um áframhaldandi fjármögnun. Við trúum því að við getum í sameiningu fundið farsæla lausn til framtíðar fyrir þau tæplega 90 börn sem sótt hafa Ævintýrabúðirnar ár hvert.

Til að forðast misskilning er mikilvægt að árétta að verkefnið snýr ekki að hefðbundnu starfi sumarbúðanna í Reykjadal í Mosfellsdal. Sú starfsemi helst óbreytt og þar munu um 200 börn með þroska- og/eða hreyfihömlun á aldrinum 8–19 ára koma í sumardvöl nú í sumar.

Á myndinni eru Andrea Rói Sigurbjörns, forstöðumaður Reykjadals (í fæðingarorlofi), Hildur Helgadóttir, starfandi forstöðumaður Reykjadals, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Bergljót Borg, framkvæmdastjóri Gló stuðningsfélags.