Til baka
woman on conference stage

Gló á Fundi fólksins - ráðstefnu Almannaheilla

Gló

Gló stuðningsfélag tók þátt í Fundi fólksins sem haldinn var í Hörpu í gær. Ráðstefnan er vettvangur samtals og samvinnu frjálsra félagasamtaka, stjórnsýslu og almennings, var vel sótt og lagði áherslu á að efla lýðræðislega umræðu og styrkja stöðu þriðja geirans.

Bergljót Borg, framkvæmdastjóri Gló, tók virkan þátt í dagskránni og hélt erindið Hvernig halda almannaheillafélög starfsemi sinni gangandi? Hún fjallaði um helstu áskoranir og tækifæri í fjármögnun þriðja geirans og lagði áherslu á mikilvægi nýsköpunar í starfsemi almannaheillafélaga sem vinna að mannréttindum, þátttöku og samfélagslegri velferð. 

Gló var jafnframt með viðveru á svæðinu þar sem gestir gátu kynnt sér starfsemi félagsins — þar á meðal þverfaglega þjónustu Gló Æfingastöðvar og tómstunda- og sumarbúðastarf Reykjadals.  

Nánar um Fund fólksins – ráðstefnu Almannaheilla