Gló hlaut viðurkenninguna Stofnun ársins 2025
Gló
Gló stuðningsfélag hlaut viðurkenningu Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu sem Stofnun ársins 2025 í flokki sjálfseignarstofnana og fyrirtækja í almannaþjónustu.
Við komum ný inn á listann undir nýju nafni – og lendum efst. Það er ekki sjálfgefið. Niðurstöðurnar byggja á svörum starfsfólks í Sameyki. Það segir allt sem segja þarf.
Þessi viðurkenning staðfestir að ánægja, stolt, sjálfstæði og jafnrétti innan vinnustaðarins skipta máli. Þegar starfsfólk upplifir traust og virðingu í starfi myndast sterk liðsheild – og það skilar sér beint í betri þjónustu fyrir þau sem treysta á okkur.
Við erum ótrúlega stolt af okkar flotta fólki – fagmennskunni, hlýjunni og samheldninni sem mótar menninguna okkar á hverjum degi.
Takk fyrir traustið.