Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Gló stuðningsfélag hefur hafið söfnun fyrir nýjum matsal í sumarbúðunum í Reykjadal í Mosfellsdal. Samhliða nýjum matsal verður eldhús endurnýjað og aðstaða bætt fyrir starfsfólk. Hægt verður að leggja söfnuninni lið með því að kaupa Sumargjöf Reykjadals á síðunni sofnun.reykjadalur.is.
Heildarkostnaður við uppbygginguna er áætlaður yfir 300 milljónir króna og er fjármögnun byggð á samspili sjóða, styrkja og framlaga frá almenningi og fyrirtækjum.
Matsalur of lítill og aðgengi slæmt
Matsalurinn í Reykjadal gegnir lykilhlutverki í sumarbúðunum og helgardvölunum en þar hittast öll börnin og ungmennin, borða saman og verja deginum. Núverandi aðstaða er hins vegar orðin alltof lítil, illa aðgengileg og uppfyllir ekki kröfur nútímans. Sama á við um eldhús og aðstöðu starfsfólks sem er víða úr sér gengin og óhentug til daglegrar notkunar.
Takmarkað aðgengi og þröng rými gera það að verkum að ekki allir geta setið við sama borð. Bókstaflega.
Algild hönnun að leiðarljósi
Ný viðbygging er hluti af heildstæðri framtíðarsýn fyrir Reykjadal. Um er að ræða um 373 fermetra stækkun þar sem byggður verður rúmgóður matsalur með góðri tengingu við útisvæði, nútímalegu eldhúsi og aðstöðu fyrir starfsfólk. Markmiðið er að skapa rými sem gerir daglegt líf einfaldara, aðgengilegra og betra fyrir bæði gesti og starfsfólk Reykjadals.
Viðbyggingin er hönnuð af Teiknistofunni Stiku og Birtu Fróðadóttur arkitekt, Landslag sér umlóðarhönnun og Ferill verkfræðistofa um verkfræðihönnun. Lögð er sérstök áhersla á algilda hönnun þar sem aðgengi er ekki viðbót heldur grunnforsenda, bæði í byggingunni sjálfri og í samspili hennar við útisvæði.
„Aðstaðan í gamla skálanum sem við nýtum sem matsal mætir hvorki þörfum gestanna né almennum kröfum um aðgengi,“ segir Hildur Helgadóttir starfandi forstöðumaður Reykjadals. „Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús. Við viljum byggja rými sem skapa aðstæður sem hvetja til samveru, leiks og svo auðvitað góðrar næringar.“
Um Reykjadal
Frá árinu 1963 hefur félagið byggt upp og rekið sumarbúðir í Reykjadal í Mosfellsdal þar sem fötluð börn og ungmenni fá að taka þátt í leik, útiveru og félagslífi á eigin forsendum. Í dag er einnig boðið upp á helgardvalir yfir vetrartímann og ýmis önnur tómstundatækifæri. Starfsemin hefur vaxið og þróast, en aðstaðan hefur ekki haldið í við þá þróun – og því er þörf á verulegri uppbyggingu.
Með átakinu Sumargjöf Reykjadals er almenningur og atvinnulíf hvatt til að taka þátt í uppbyggingunni. Hver gjöf – stór sem smá – færir verkefnið nær markmiðinu: að skapa aðgengilegt, hlýlegt og mannvænt rými fyrir komandi kynslóðir í Reykjadal.