Góðgerðarpizzan 2026 til styrktar Gló Æfingastöðvar
Dagana 24.-27. ágúst rennur allt söluandvirði af Góðgerðarpizzu Domino’s til Gló Æfingastöðvar. Söfnunin mun styðja við nauðsynlegar endurbætur á húsnæði Gló Æfingastöðvar að Háaleitisbraut 13, þar sem tæplega 1.800 börn, ungmenni og fjölskyldur fá þjónustu ár hvert.
Stjörnukokkurinn Hrefna Sætran hefur verið með Domino’s í liði frá upphafi Góðgerðarpizzunnar og hefur í ár sett saman glóandi góða pizzu fyrir Gló Æfingastöð.
Nauðsynlegar endurbætur á sérhæfðu húsnæði Gló
Gló stuðningsfélag vinnur nú að nauðsynlegum endurbótum og bættu aðgengi í húsnæði Gló Æfingastöðvar að Háaleitisbraut 13. Húsnæðið var byggt árið 1968 og þar var meðal annars komið fyrir sundlaug, æfingasal og þjálfunarrýmum. Árið 1980 var reist fjögurra hæða viðbygging og sundlaugin endurbyggð árið 1994 með miklum stuðningi almennings og atvinnulífs.
Nauðsynlegar úrbætur á húsnæðinu eru þegar hafnar og markmiðið er að tryggja öruggt, heilnæmt og aðgengilegt umhverfi sem mætir þörfum barna, fjölskyldna og starfsfólks til framtíðar.
Frumdrög að endurhönnun á anddyri Gló Æfingastöðvar. Batteríið Arkitektar sér um endurhönnun en fyrirtækið býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á aðlögun mannvirkja að umhverfi og veðurfari, algildri hönnun og öryggi notenda.
Þjónusta við börn og fjölskyldur frá 1954
Gló Æfingastöð er miðstöð þjónustu og þekkingar í snemmtækri íhlutun og endurhæfingu fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttar stuðningsþarfir og áskoranir. Stöðin hefur verið rekin af Gló stuðningsfélagi frá árinu 1954 og byggir þjónustan á fjölskyldumiðaðri nálgun þar sem áhersla er lögð á þátttöku, styrkleika og virkni barnsins í daglegu lífi.
Unnið er í nánu samstarfi við fjölskyldur, skóla, leikskóla og aðra fagaðila til að tryggja samræmdan og markvissan stuðning. Þjónustan getur falist í þjálfun, ráðgjöf, aðlögun umhverfis, útvegun hjálpartækja og öðrum úrræðum sem styðja við þroska og þátttöku.
Markmið starfseminnar er að efla þátttöku barna, ungmenna og fatlaðs fólks í daglegu lífi, styrkja sjálfstæði og auka lífsgæði einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Með snemmtækum stuðningi, þekkingu og samstarfi leggur Gló Æfingastöð grunn að auknum tækifærum og farsælli framtíð.
Pantaðu Góðgerðarpizzuna hjá Domino’s dagana 24.–27. ágúst og leggðu þitt af mörkum til að bæta aðstöðu barna og fjölskyldna á Gló Æfingastöð.