Halda þræði er Kærleikskúla ársins og þrír íþróttaþjálfarar eru Kærleikskúluhafar ársins 2025
Kærleikskúlan 2025 sem Gló stuðningsfélag gefur út var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur í dag, þriðjudaginn 2. desember. Loji Höskuldsson er listamaður Kærleikskúlunnar 2025 sem kallast Halda þræði.
Á hverju ári velur Gló einnig handhafa Kærleikskúlunnar – einstaklinga sem hafa með störfum sínum breytt viðhorfum, stutt við þátttöku og verið mikilvægar fyrirmyndir í samfélaginu. Valnefnd skipuðu Björn Gústav Jónsson og Hrefna Rós Matthíasdóttir úr stjórn Gló, Lúkas Garpur, fulltrúi Gló ungmennaráðs, og móðir hans Rakel Óskarsdóttir ásamt Bergljótu Borg, framkvæmdastjóra Gló.
Valnefndin lagði sérstaka áherslu á að valið endurspeglaði hlutverk Gló – að efla þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu, með stuðningi við aðild að tómstundum, menningu, heilbrigðu og öruggu lífi og að styrkja sjálfsmynd, hæfileika og færni.
Lúkas Garpur, fulltrúi ungmennaráðs Gló í valnefnd afhenti hefur þremur framúrskarandi íþróttaþjálfurum Kærleikskúlu ársins 2025:
- Bára Fanney Hálfdánardóttir, körfuboltaþjálfari Hauka Special Olympics.
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fótboltaþjálfari hjá Stjörnunni / Öspinni
- Hákon Atli Bjarkason, sem þjálfar borðtennis hjá ÍFR, hjólastólarugby hjá Fram og hjólastjólakörfubolta hjá ÍR.
Rökstuðningur valnefndar:
Handhafar Kærleikskúlunnar 2025 eiga það sameiginlegt að hafa með eldmóði, seiglu og samvinnuanda tekið þátt í að byggja upp öflugt íþróttastarf fyrir fötluð börn og ungmenni. Með störfum sínum hafa þau breytt viðhorfum og skapað tækifæri til þátttöku og keppni í ólíkum íþróttum þar sem keppnisandi og leikgleði fá að njóta sín.
Íþróttaiðkun hefur jákvæð áhrif á líkamshreysti og andlega líðan og hún er einnig ómetanleg uppspretta tækifæra til að mynda félagsleg tengsl og byggja upp heilbrigða sjálfsmynd. Í gegnum íþróttastarf læra börn samvinnu, virðingu og vinnusemi. Að takast á við sigra og ósigra, setja markið hátt og trúa á eigin getu, að tilheyra hópi og leggja sitt af mörkum en umfram allt að hafa gaman – það er valdeflandi og nærandi veganesti út í lífið.
Undanfarin misseri hafa einkennst af aukinni grósku í íþróttastarfi fyrir fötluð börn og ungmenni. Ljóst er að þar hafa mörg lagt hönd á plóginn og samvinna ólíkra aðila skilað góðum árangri. Það er þó ekki síst að þakka þeim þjálfurum sem hafa lagt líf og sál í að laða unga iðkendur að íþróttastarfi og lagt metnað í þjálfun og skipulagningu íþróttaviðburða. Kærleikskúluhafar ársins 2025 hafa sannarlega verið öðrum fyrirmynd og að heiðra þau sem lið er tákn um mikilvægi fjölbreytni og samvinnu þegar kemur að því að efla íþróttastarf fyrir öll.
Loji Höskuldsson hannar Kærleikskúlu ársins 2025
Loji Höskuldsson er þekktur fyrir frumleg útsaumsverk sem bera með sér sakleysislegan húmor og milda nostalgíu. Hann sameinar hefðbundnar og tilraunakenndar aðferðir í hægfara handverksferli og sækir viðfangsefni sín í hversdagsleikann.
Halda þræði
Eini endinn sem gefur eftir er yst, en hinn liggur í hjarta hnykilsins og er aðeins aðgengilegur með því að vefja sig í gegnum allt ferðalagið. Markmið ferðalagsins er að forðast flækjur en þær eru þó nánast óumflýjanlegar, sérstaklega ef maður tapar þræðinum á leiðinni.
Ferðalag hvers hnykils er einstakt, því enginn vefur sinn hnykil á nákvæmlega sama hátt. Það sem fyrir einum virðist auðvelt, getur reynst öðrum snúið. Ferðalagið krefst þolinmæði og elju, það er ekki ætlað þeim sem vilja skjót svör eða styttri leiðir.
Ólíkt daglegu amstri, þar sem athyglin slitnar í allar áttir, býður hnykillinn aðeins einn lausan enda. Sá endi er stöðug uppspretta hlýju, hugmynda og möguleika. Það er þar sem allt byrjar.
Loji Höskuldsson