Hlaupum fyrir Gló í Reykjavíkurmaraþoninu 2026
Laugardaginn 22. ágúst 2026 fer Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fram og við viljum bjóða félagsfólki, foreldrum og vinum Gló að hlaupa, ganga eða skokka með okkur – og safna áheitum fyrir Gló.
Hvort sem þú velur að styðja Gló Æfingastöð eða Reykjadal hjálpar þú okkur að skapa fleiri tækifæri í stað takmarkana fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Reykjadalur safnar fyrir nýjum og aðgengilegum matsal sem verður hjarta samverunnar í dalnum og Gló Æfingastöð safnar fyrir endurbótum og uppbyggingu í húsnæði sínu við Háaleitisbraut 13.
Svona tekur þú þátt:
- Skráðu þig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
- Veldu að safna fyrir Gló Æfingastöð eða Reykjadal
- Deildu áheitasíðunni þinni með fjölskyldu, vinum og kunningjum
Geturðu ekki tekið þátt?
Þú getur samt verið hluti af liðinu okkar með því að heita á hlauparana okkar á hlaupastyrkur.is. Öll áheit skipta máli og saman sköpum við fleiri tækifæri í stað takmarkana.
Öll sem hlaupa og safna fyrir Gló Æfingastöð eða Reykjadal fá glóandi-hlaupaboli og annan skemmtilegan Gló-varning sem þakklætisvott fyrir stuðninginn.
Hlauparar geta sótt pakkann sinn á bás Gló (F-21) á FIT&RUN EXPO 2026 í Laugardalshöll dagana 20.–21. ágúst.
Komdu að peppa með okkur
Það þarf ekki að hlaupa til að vera hluti af Reykjavíkurmaraþoninu. Komið og verið með okkur á hvatningarstöð Gló stuðningsfélags - Æfingastöðar og Reykjadals þar sem við hvetjum hlauparana okkar alla leið í mark! Taktu fjölskylduna, vini eða aðra félaga með, klappaðu, hrópaðu eða dansaðu á hliðarlínunni. Á hverju ári skapast alveg frábær stemmning sem gefur hlaupurunum aukinn kraft.
📍 Hornið við Eiðsgranda og Skeljagranda
📅 Laugardaginn 22. ágúst 2026