Minning: Guðný Margrét Þórisdóttir (25.06.1940-15.06.2026)
Guðný Margrét Þórisdóttir, Gagga – eða frú Margrét eins og við kölluðum hana stundum, var sjúkraþjálfari og starfaði alla sína starfsævi hjá félaginu. Hún var ráðin til Reykjadals við upphaf starfseminnar í Mosfellsdal árið 1963, þá nýkomin heim frá námi í Svíþjóð. Fljótlega færði hún sig yfir á Æfingastöðina sem þá var með aðsetur að Sjafnargötu 13. Þar starfaði Gagga óslitið í 50 ár, allt þar til hún lét af störfum árið 2013, þá 73 ára að aldri.
Gagga var alla tíð mikill gleðigjafi, einstaklega létt í lund með smitandi hlátur og glettinn húmor. Hún var hrókur alls fagnaðar á samkomum, spilaði á gítar og fékk fólk iðulega með sér í söng og glens. Góðvild og hlýja skein úr fasi Göggu og einkenndi öll hennar störf á Æfingastöðinni. Hún var umhyggjusöm, traust og góður vinur starfsmanna jafnt sem skjólstæðinga.
Í dag færum við elskulegu Göggu okkar hinstu kveðju. Við minnumst hennar með hlýju og miklu þakklæti. Minning hennar lifir ekki hvað síst í starfsmannafélaginu okkar sem ber nafn hennar með stolti.
Fjölskyldu Göggu og ástvinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Starfsfólk og stjórn Gló