Til baka
article from1992

Minning: Sigurður Ólafsson (1927-2026)

Gló

Í dag kveðjum við Sigurð Ólafsson (1927–2026) með þakklæti og hlýju í hjarta.
Sigurður starfaði sem bílstjóri fyrir félagið frá fyrstu árum þess og lagði sitt af mörkum af einstökum drifkrafti og ósérhlífni. Hann var hluti af þeim hópi ssem byggði starfsemina upp af eldmóði, tryggð og dugnaði sem seint gleymist.

Hér að neðan birtum við stutt viðtal við Sigurð sem birtist í afmælisriti félagsins árið 1992.

50 ferðir umhverfis jörðina

Sigurður Ólafsson, bílstjóri SLF, tekinn tali

 

Þú ert Sigurður Ólafsson, er ekki svo?
Jú, rétt er það.

Hefur þú starfað mjög lengi hjá SLF?
Það má segja það. Ég hóf störf hér 1. nóvember 1955. Að vísu ekki sem bifreiðastjóri, því ég vann fyrst við breytingar á húsnæðinu við Sjafnargötu sem þá var verið að breyta í æfingastöð á vegum SLF.

Hvenær byrjar þú að aka fötluðum á vegum SLF?
Það var í janúar 1956, þegar deildin var að opna. Fyrsti bíllinn sem SLF eignaðist til þessara nota var Chevrolet límósína sem Sambandið gaf félaginu.

Um þig hefur verið sagt, Sigurður, að þú hafir ekki orplengt um hlutina, gengið beint til verka og verið ósérhlífinn. Er manninum rétt lýst með þessum hætti?

Aðstæður voru öðruvísi þegar ég hóf störf fyrir 37 árum en nú. Á Sjafnargötu var til dæmis upp margar tröppur að fara. Ég fór daglega með um 20 einstaklinga sem fengið höfðu lömunarveikina. Ég ók meðal annars með sjúklinga frá Heilsuverndarstöðinni að Sjafnargötu. Það varð að bera marga þeirra. Svo var fólksbíllinn ekki mjög hentugur að þessu leyti. Sérbúnir bílar, eins og ég ek nú, komu ekki fyrr en fyrir um 15 árum.

Hefur þú verið happasæll í starfi þínu?
Já, ætli megi ekki segja það. Allan þennan tíma hef ég aðeins einu sinni lent í árekstri. Það var á Hafnarfjarðarveginum. Bíll sem kom úr gagnstæðri átt ók svo að segja beint framan á mig. Þetta slapp betur en á horfðist. Ég skarst á höku og rifbeinsbrotnaði, en aðrir sluppu betur.

Hversu langan spotta hefur þú ekið í þágu SLF, ef allt er saman tekið?
Það vil nú svo til, að ég sló á þetta einhvern tíma. Mér sýnist að þetta gæti verið um 2 milljónir kílómetra. Þetta svarar 50 ferðum hringinn í kringum jörðina.

Kanntu starfinu vel?
Þegar ég byrjaði hjá SLF fyrir 37 árum var ekki ætlunin að staldra hér lengi við. Það fór á annan veg og það held ég að svari ágætlega spurningunni.

article from1992