Nýtt komugjald frá 1. september 2026
Æfingastöð
Frá og með 1. september 2026 tekur í gildi ný reglugerð heilbrigðisráðuneytisins um sérstakt komugjald vegna sjúkraþjálfunar og iðjuþjálfunar.
Gló Æfingastöð ber líkt og öðrum þjónustuaðilum að innheimta gjaldið fyrir hverja komu:
1.500 kr. – almennt sjúkratryggðir
1.000 kr. – aldraðir
500 kr. – öryrkjar
0 kr. – börn yngri en 18 ára
Komugjaldið kemur til viðbótar við almenna greiðsluþátttöku og telst ekki inn í afsláttarstofn greiðsluþátttökukerfis Sjúkratrygginga Íslands. Það er því innheimt fyrir hverja komu óháð því hversu mikla heilbrigðisþjónustu viðkomandi hefur áður nýtt.
Við viljum sérstaklega árétta að börn yngri en 18 ára greiða ekkert komugjald.
Nánari upplýsingar má finna hjá Sjúkratryggingum Íslands.