Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Ævintýrabúðir og Vinahópa Reykjadals
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í sérverkefni Reykjadals fyrir sumarið 2026: Vinahópa Reykjadals og Ævintýrabúðir.
Sjöunda árið í röð stendur fullorðnu fötluðu fólki til boða að koma í sumarfrí að hætti Reykjadals undir hatti Vinahópa Reykjdadals. Þetta árið bjóðum við ungu fólki á aldrinum 20 ára til 30 ára að taka þátt í verkefninu (árgangar 1995 til og með 2004). Verkefnið er styrkt af félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.
Í sumar fara Ævintýrabúðirnar fram á tveimur stöðum eftir aldri þátttakenda. Yngri hópurinn verður á Reykjum í Hrútafirði í júní og eldri hópurinn verður á Úlfljótsvatni í júlí. Ævintýrabúðirnar eru ætlaðar börnum fædd á árunum 2010-2018 með adhd og/eða einhverfu og eru einnig með stuðningsþarfir. Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Umsóknarfrestur er 19. apríl 2026 og úthlutun mun fara fram stuttu seinna. Vinsamlegast fyllið umsóknarformið samviskusamlega út.
Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband í netfang reykjadalur@glofelag.is eða síma 566-6234.