Til baka
Reykjadalur covered in snow

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vetrardvalir í Reykjadal

Opið er fyrir umsóknir í vetrardvalir Reykjadals veturinn 2026–2027. Vetrardvalir eru fyrir börn og ungmenni 25 ára og yngri og fara fram um helgar í Reykjadal í Mosfellsdal.

Hver gestur fær að jafnaði úthlutað einni helgardvöl á haustönn og einni á vorönn. Haustdvalir hefjast í lok september og standa fram í nóvember. Starfsemin hefst aftur í lok janúar og stendur fram í mars.

Verð fyrir helgardvöl

Verð fyrir hverja helgardvöl er 25.000 kr. fyrir gesti undir 18 ára og hægt er að nýta frístundastyrk sveitarfélaga. Verð fyrir 18 ára og eldri er 30.000 kr.

Fyrirkomulag

Raðað er í hópa með hliðsjón af aldri, vinatengslum og öðrum þáttum sem stuðla að góðri dvöl. Ef gestur er að koma í Reykjadal í fyrsta skipti höfum við samband til að fá nánari upplýsingar og undirbúa dvölina sem best.

Mæting er á föstudögum í kvöldmat og eru gestir sóttir á sunnudegi eftir hádegi. Dvalir yfir vetrartímann einkennast af skemmtilegri dagskrá, afslappaðri samveru og kvöldvökum í notalegri stemningu meðal vina.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2026. Mikilvægt er að umsóknin sé vandlega útfyllt svo við höfum sem bestar upplýsingar við skipulagningu dvalanna.

Ekki þarf að sækja sérstaklega um fyrir vorið 2027. Umsókn fyrir haustið 2026 gildir einnig fyrir vorönnina. Hér er hægt að sækja um í vetrardvöl 2026-2027:

 

Sækja um vetrardvöl í Reykjadal

Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Reykjadals í síma 566 6234 eða á reykjadalur@glofelag.is.

Fyrir nýja gesti

Góður undirbúningur skapar öryggi – og gerir upplifunina enn betri frá fyrsta degi. Við hvetjum nýja gesti að kynna sér efnið á hlekk hér að neðan til þess að undirbúa sig fyrir dvölina.

Nánari upplýsingar fyrir nýja gesti

Four boys making pyramid