Til baka
Four people posing with flowers

Palla Open styður við uppbyggingu í Reykjadal

Gló

Um helgina fór góðgerðargolfmótið Palla Open fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Þetta er sjötta árið í röð sem mótið er haldið í samstarfi við Golfklúbb Mosfellsbæjar og hefur það vaxið hratt á undanförnum árum. Í ár tóku alls 256 kylfingar þátt og er Palla Open í dag eitt stærsta og vinsælasta golfmót landsins.

Frá því að mótið var fyrst haldið árið 2021 hafa safnast um 18 milljónir króna til góðgerðarmála. Stærstur hluti þess stuðnings hefur runnið til Reykjadals og auk þess hefur Palla Open lagt sitt af mörkum til kaupa á fjórum útivistarhjólastólum sem nýtast gestum Reykjadals vel.

Sá stuðningur hefur skipt sköpum og hjálpað okkur að stíga stór skref í uppbyggingu staðarins. Nú stendur yfir söfnun fyrir nýrri viðbyggingu í Reykjadal sem mun hýsa nýjan matsal, fullbúið eldhús og bætta aðstöðu fyrir starfsfólk – mikilvæga innviði sem styrkja starfsemina til framtíðar og gera okkur kleift að taka enn betur á móti gestum og vinasamfélagi Reykjadals.

Stjórn og starfsfólk Gló óskar Páli Erni Líndal, skipuleggjendum Palla Open, Golfklúbbi Mosfellsbæjar og öllum þátttakendum innilega til hamingju með glæsilegt mót. Um leið þökkum við þeim fyrir þann hlýhug, samhug og stuðning sem þau hafa sýnt Reykjadal í gegnum árin.

Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og óskum öllum sem komu að mótinu innilega til hamingju með frábæran árangur.

Á myndinni eru Bergljót Borg, framkvæmdarstjóri Gló, Páll Örn Líndal, skipuleggjandi Palla Open, Harpa Júlíusdóttir úr stjórn Gló og Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri Gló.