Til baka
Kids sitting in grass with guitar

Sækja um sumardvöl í Reykjadal

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumardvalir í Reykjadal

Mikilvægt er að umsóknin sé vandlega og samviskusamlega útfyllt.
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2026.

Sumarbúðirnar eru fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 8–19 ára.
Umsækjendur fæddir 2007 og 2008 koma nú í síðasta skipti í sumarbúðir Reykjadals í Mosfellsdal.

Raðað er í hópa eftir aldri og félagslegum tengslum, því er ekki hægt að óska eftir ákveðinni dagsetningu.

Verð fyrir 9 daga dvöl er 89.000 kr.
Hægt er að:

  • skipta greiðslum niður
  • nýta frístundastyrk sveitarfélaga

Úthlutun fer fram fyrir lok febrúar 2026 og niðurstaða berst með tölvupósti.

Sækja um sumardvöl í Reykjadal - Mosfellsdal

Ef eitthvað er óljóst má hafa samband:
📧 reykjadalur@glofelag.is
📞 566 6234

Fyrir nýja gesti – gott að skoða fyrirfram

Við hvetjum nýja gesti og fjölskyldur til að kynna sér vel:

  • daglegt líf og dagskrá í Reykjadal
  • hvað á að pakka með sér
  • upplýsingar um lyf, aðstoð og stuðningsþarfir
  • myndir og kynningarefni frá starfinu

Góður undirbúningur skapar öryggi – og gerir upplifunina enn betri frá fyrsta degi. Við hvetjum nýja gesti að kynna sér efnið á hlekk hér að neðan til þess að undirbúa sig fyrir dvölina.

Ertu nýr hér?

Girls eating marsmellows