Til baka
two women

Sérfræðingar í snemmtækri íhlutun einhverfra barna í heimsókn

Æfingastöð
Þessa dagana eru sérfræðingarnir Björg LeSueur og Svanhildur Svavarsdóttir á landinu á vegum Gló þar sem nýtt verkefni um snemmtæka íhlutun fyrir einhverf börn á leikskólaaldri er sett af stað. Verkefnið hlaut styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.
 
Fimm teymum barna sem sækja þjónustu á Gló Æfingastöð var boðin þátttaka í verkefninu. Í teymunum eru foreldrar og fjölbreyttur hópur fagfólks, m.a. frá Gló Æfingastöð og starfsfólks frá leikskólum og annarri þjónustu sem kemur að daglegu lífi barnanna.
 
Björg og Svanhildur leiða umræðufundi, fyrirlestra og verkefnavinnu þar sem teymið vinnur markvisst með aðferðir í daglegu starfi með börnunum. Markmiðið er að efla þekkingu, samvinnu og hagnýta færni fagfólks og foreldra í snemmtækri íhlutun. Áhersla er lögð á tengslamiðaðar nálganir (DIR) og skipulagt, styðjandi og einstaklingsmiðað námsumhverfi barna (TEACCH). 
 
Björg LeSueur er klínískur dósent við Arizona State University og hefur yfir 25 ára reynslu af snemmtækri menntun og sérkennslu. Hún hefur starfað bæði sem sérkennari og leiðbeinandi fyrir fagfólk og tekið þátt í uppbyggingu innleiðandi leikskólastarfs þar sem teymisvinna ólíkra fagstétta er í forgrunni.
 
Svanhildur Svavarsdóttir hefur einnig áratuga reynslu af þjónustu og fræðslu fyrir fagfólk og fjölskyldur barna með fjölbreyttan taugaþroska og hefur starfað bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum við þróun náms og handleiðslu í snemmtækri íhlutun.
 
Verkefnið er mikilvægt skref í að efla samvinnu foreldra og fagfólks þvert á kerfi og styðja við snemmtæka íhlutun sem styrkir þátttöku, færni og lífsgæði einhverfra barna og fjölskyldna þeirra. 
Group photo with participants