Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra verður Gló stuðningsfélag
Það gleður okkur að tilkynna að Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur fengið nýtt nafn: Gló stuðningsfélag.
Á þessum miklu tímamótum lítum við til baka með þakklæti og horfum bjartsýn fram á veginn. Með nýja nafninu kemur ný ásýnd og ferskur tónn sem endurspeglar breyttar áherslur og viðhorf í nútímasamfélagi.
Við byggjum á drifkrafti, eldmóði og hlýju sem hefur einkennt starf Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra um áratuga skeið og höldum áfram að ryðja braut og vinna frumkvöðlastarf í þjónustu við fötluð börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra, breyta viðhorfum og draga úr samfélagslegum hindrunum.
Markmið okkar er skýrt - að öll börn og ungmenni fái að láta ljós sitt skína.
Gló stuðningsfélag mun áfram leggja sitt af mörkum til að efla þátttöku barna og ungmenna með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir. Við styðjum sérstaklega við tækifæri til að taka þátt í tómstundum og menningu og til að rækta sjálfsmynd sína, hæfileika og færni. Mikilvægur liður í því er að starfrækja öfluga fjölskyldumiðaða þjónustu á Æfingastöðinni og bjóða uppá fjölbreytt tómstundatækifæri á vegum sumarbúðanna í Reykjadal.
Það er okkar einlæga von að þið takið nýja nafninu fagnandi og saman getum við haldið áfram að vera afl til jákvæðra breytinga og skapa tækifæri í stað takmarkana.
Við þökkum ómetanlegan stuðning og velvild í okkar garð. Stuðningur ykkar verður alltaf okkar styrkur!
Nýlegar fréttir