Sumarhappdrætti Gló víkur fyrir Sumargjöf Reykjadals
Í ár mun Gló stuðningsfélag ekki gefa út sumarhappdrætti líkt og fyrri ár. Þess í stað beinum við öllum okkar kröftum í Sumargjöf Reykjadals – stærsta og mikilvægasta fjáröflunarverkefni okkar um þessar mundir.
Gló hefur hafið söfnun fyrir nýjum matsal í Reykjadal í Mosfellsdal. Samhliða verður eldhús endurnýjað og aðstaða bætt fyrir starfsfólk – breytingar sem munu gjörbreyta aðstöðunni til framtíðar. Heildarkostnaður er áætlaður yfir 300 milljónir króna og byggir fjármögnunin á samspili sjóða, styrkja og framlaga frá almenningi og atvinnulífi.
Hægt er að leggja söfnuninni lið hér:
Til styrktaraðila happdrættisins
Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem sumarhappdrætti Gló hefur notið undanfarin ár. Í stað happdrættismiða munu þeir sem hafa áður tekið þátt fá senda valkröfu í heimabanka upp á 5.000 kr. – sem er vinsælasta sumargjöfin. Valið er ykkar hvort þið greiðið valkröfuna en vinningar fylgja ekki með framlaginu.
Einnig er hægt að velja aðrar upphæðir á söfnunarsíðunni. Hver gjöf – stór sem smá – færir verkefnið nær markmiðinu: að skapa aðgengilegt, hlýlegt og mannvænt rými fyrir komandi kynslóðir í Reykjadal.