Sundlaugin í Reykjadal komin aftur í fulla virkni eftir miklar endurbætur
Það var sannkölluð gleðisprenging um síðustu helgi þegar fyrsta sundlaugapartíið fór fram í nýuppgerðri sundlaug Reykjadals í Mosfellsdal. Eftir mánuði af framkvæmdum er laugin aftur orðin að hjarta Reykjadals – eins og hún á að vera. Spennan hefur verið áþreifanleg í vetur og gestir okkar beðið með sundfötin tilbúin því fyrir mörg er sundið einfaldlega ómissandi hluti af dvölinni í Reykjadal.
Stuðningurinn skiptir sköpum
Samfélagið brást við af ótrúlegum krafti þegar við hrundum af stað söfnunarátaki fyrir endurbótum á sundlauginni á sumardaginn fyrsta í fyrra. Við þökkum öllum sem lögðu sitt af mörkum og erum þakklát fyrir þann samhug sem samfélagið sýndi okkur. Það varð til þess að við náðum draumamarkmiðinu okkar.
Betri og öruggari aðstaða allan ársins hring
Verkefnið fór strax í gang og hafa framkvæmdir staðið yfir frá sumarlokum.
- Sundlaugarhúsið var gert fokhelt og veggir og gólf tekin í gegn
- Umfangsmikil lagna- og tæknivinna var unnin í góðu samstarfi við fagfólk og birgja
- Nýr tæknibúnaður settur upp – þar á meðal sandsíur, forhitarar, dælur og nýtt lagnakerfi
Aðstaðan í dag er orðin öruggari og endingarbetri. Hún er tilbúin fyrir ótal sundferðir bæði yfir sumar og vetrartímann. Við erum enn að vinna í lagfæringum á heita pottinum og umhverfi sundlaugarinnar, sem verður frískað upp og öryggi aukið til muna á næstu misserum.
Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja studdi okkur þegar kom að framkvæmdum, kaupum á tækjabúnaði, uppsetningu og ráðgjöf við endurbætur laugarinnar. Við viljum þakka sérstaklega Bjargarlögnum, Hitatækni, S. Hermann og Tengi fyrir faglega ráðgjöf og stuðning í öllu ferlinu.
Mánaðarlegur stuðningur skapar stöðugleika
Þetta hefðum við ekki getað gert án ómetanlegs stuðnings samfélagsins. Reykjadalur er rekinn af Gló stuðningsfélagi þar sem boðið er upp á sumarbúðir og vetrardvalir fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir. Árlega koma yfir 200 gestir á aldrinum 8–19 ára í Reykjadal í Mosfellsdal . Starfsemin einkennist af gleði, jákvæðni og ævintýrum, þar sem lögð er áhersla á að ekkert sé ómögulegt og að öll börn og ungmenni fái að láta ljós sitt skína á eigin forsendum.
Við eigum okkur trausta stuðningssveit, Vinir Reykjadals, sem samanstendur af einstaklingum sem styðja við starfsemina í hverjum mánuði. Við bjóðum öll hjartanlega velkomin í hóp Vina Reykjadals því hvert einasta framlag á þátt í að gefa gleði og ógleymanlegar minningar.