Taktu þátt í Gló ungmennaráði
Gló ungmennaráð er vettvangur þar sem börn og ungmenni hafa raunveruleg áhrif á starf Gló stuðningsfélags og stöðu fatlaðra barna og ungmenna á Íslandi. Ungmennaráðið er ráðgefandi afl innan félagsins og rödd þeirra sem málið snertir mest.
Í ráðinu sitja börn og ungmenni sem hittast mánaðarlega, deila hugmyndum, benda á það sem má betur fara og leggja til lausnir sem gera Reykjadal og Gló Æfingastöð að betri og aðgengilegri stöðum fyrir öll.
Gló ungmennaráð vill stækka hópinn og leitar að börnum og ungmennum sem vilja taka þátt, láta rödd sína heyrast og vera hluti af breytingum. Ef þú ert iðkandi á Gló Æfingastöð og/eða gestur í Reykjadal hvetjum við þig til að taka þátt – óháð stuðningsþörf.
📩 Hafðu samband: reykjadalur@glofelag.is