Um 510 manns tóku þátt í vorráðstefnu um þátttöku og framtíð fatlaðra barna
Um 510 manns tóku þátt í Vorráðstefnu 2026 sem Gló Æfingastöð hélt í samstarfi við Ráðgjafar- og greiningarstöð dagana 7.–8. maí á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi. Yfirskrift ráðstefnunnar var Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna. Ráðstefnan er einn stærsti vettvangur þeirra sem starfa með fötluðum börnum og ungmennum og skapar mikilvægt samtal um viðhorf, þjónustu og framtíð fatlaðra barna.
Á ráðstefnunni var sjónum beint að því að horfa á það sem barnið getur gert í stað þess að einblína eingöngu á áskoranir og frávik. Þar voru meðal annars F-orðin í þroska og þátttöku í brennidepli: Færni, Fjölskylda, Form, Vinir/Félagar, Fjör og Framtíð. Þau minna á mikilvægi þess að færa áherslu frá takmörkunum yfir í styrkleika, færni, þátttöku og lífsgæði barna.
Einnig var fjallað um hvernig samfélagið, þjónustukerfi, skólar, tómstundir og nærumhverfi barna geta skapað raunveruleg tækifæri til þátttöku í daglegu lífi. Rauði þráðurinn var að þátttaka fatlaðra barna er ekki aðeins einstaklingsbundið viðfangsefni heldur sameiginleg ábyrgð samfélagsins.
Dagskráin var fjölbreytt og dró fram ólík sjónarhorn, bæði fræðileg og byggð á lifaðri reynslu. Í erindum og samtölum ráðstefnunnar var lögð áhersla á að horfa til styrkleika barna, aðstæðna þeirra og þeirra tækifæra sem samfélagið skapar. Umræðan undirstrikaði mikilvægi þess að hlusta á raddir barna, ungmenna og fjölskyldna og þróa þjónustu sem styður við þátttöku, lífsgæði og framtíðarsýn.
Ráðstefnunni lauk með áhrifamiklum hætti og ljóst var að viðfangsefnið snerti þátttakendur djúpt. Eftir stóð sterk áminning um að tækifæri til þátttöku eiga ekki að vera háð tilviljunum, heldur þurfa þau að vera hluti af því hvernig við skipuleggjum þjónustu, skóla, tómstundir og samfélag.
Við hjá Gló Æfingastöð erum afar þakklát fyrir farsælt samstarf við Ráðgjafar- og greiningarstöð, góða þátttöku og allar þær mikilvægu umræður sem sköpuðust á ráðstefnunni. Þegar fólk kemur saman, deilir þekkingu og vinnur í sömu átt verða til raunveruleg tækifæri til breytinga.