Til baka
Endurhönnun á Gló Æfingastöð anddyri

Úrbætur og endurbætur framundan í húsnæði Gló Æfingastöðvar

Við nýlega ástandsskoðun á húsnæði okkar að Háaleitisbraut 13 komu í ljós merki um raka og rakaskemmdir. Um er að ræða afmörkuð svæði og niðurstöður kjarnasýna staðfesta vöxt myglusveppa á fáeinum stöðum.

Þegar hefur verið gripið til aðgerða, meðal annars með lofthreinsitækjum og ítarlegum þrifum samkvæmt ströngustu kröfum. Á næstunni verður farið í viðgerðir og frekari fyrirbyggjandi aðgerðir í þeim rýmum sem þess þurfa. Sú vinna verður unnin samhliða almennum endurbótum innandyra sem þegar voru fyrirhugaðar í húsnæðinu. 

Vegna eðli starfseminnar leggjum við mikla áherslu á að allt ferlið sé unnið af kostgæfni, með aðstoð og undir eftirliti sérfræðinga.

Ekki er gert ráð fyrir að starfsemi Gló Æfingastöðvar raskist verulega vegna þessa. Á næstu misserum gæti þó komið til tímabundinnar röskunar á starfsemi eða að einstaka rými verði lokuð á meðan framkvæmdir standa yfir.

Við vitum að fólk er misnæmt fyrir loftgæðum. Ef þið teljið ykkur viðkvæm fyrir slíkum aðstæðum biðjum við ykkur að láta þjálfara vita svo hægt sé að taka tillit til þess eftir bestu getu.

Markmið okkar er að tryggja góð loftgæði og öruggt umhverfi fyrir okkur öll. Við munum halda áfram að upplýsa ykkur um framvinduna. Ef spurningar vakna eða þið viljið koma ábendingum á framfæri er ykkur velkomið að hafa samband við okkur á glo@glofelag.is.

Við þökkum þolinmæði og skilning á meðan þessu ferli stendur.

Endurhönnun á Gló Æfingastöð anddyri
Frumdrög að endurhönnun á anddyri Gló Æfingastöðvar unnið af Batteríið