Verum Gló-berar - Félagsgjöld 2026
Félagsgjöld Gló stuðningsfélags fyrir árið 2026 eru nú að berast félagsmönnum. Árgjaldið er 3.900 kr. og birtist sem bankakrafa í heimabanka á næstu dögum.
Samhliða innheimtu félagsgjalda hvetjum við alla félagsmenn til að uppfæra tengiliðaupplýsingar sínar með því að senda inn nýja rafræna umsókn um félagsaðild. Það tekur aðeins örfáar mínútur og er mikilvægur þáttur í að tryggja góð samskipti og öflugt félagsstarf.
Hvers vegna skiptir félagsaðild þín máli?
Öflugt félagsfólk er undirstaða öflugs starfs og þú getur lagt þitt af mörkum til að móta stefnu og starfsemi félagsins.
Félagsmenn:
- skapa þá innri krafta og notendamiðuðu sýn sem aðgreinir almannaheillafélag frá opinberum rekstri
- eru uppspretta hugmynda um þróun starfseminnar og forgangsröðun þarfa
- hafa atkvæðisrétt á félagsfundum, þar á meðal aðalfundi
geta boðið sig fram til stjórnar og tekið þátt í beinni stjórnun og stefnumótun - geta tekið þátt í notenda- og fagráðum sem eru ráðgefandi í þróun og mótun starfseminnar
Ertu Vinur Reykjadals?
Í umsókninni er einnig hægt að haka við ef þú vilt gerast Vinur Reykjadals og styðja við starfið með mánaðarlegu framlagi. Sá stuðningur fer beint í að efla starfsemi Gló í Reykjadal.
Vinir Reykjadals gerast sjálfkrafa styrktaraðilar Gló og hafa rétt til setu á félagsfundum sem áheyrnarfulltrúar, en hafa ekki atkvæðisrétt. Til að hljóta atkvæðisrétt þurfa Vinir Reykjadals að sækja sérstaklega um félagsaðild samkvæmt reglum félagsins.
Verum Glóberar
Að vera Gló-beri þýðir að standa með starfinu, taka þátt og hjálpa til við að láta tækifæri verða að veruleika. Félagar Gló eru uppspretta hugmynda um hvernig starfsemin skuli þróast og hvaða þarfir eigi að hafa í forgrunni. Endilega hvettu þau sem hafa áhuga á starfi Gló að vera virk og gerast félagar.
Öflugur félagsskapur styrkir starfsemina – og framtíðina.
Með kærri þökk og hlýjum kveðjum,
Stjórn Gló