Vorráðstefna 2026: Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna
Við viljum vekja athygli á spennandi samstarfi Gló Æfingastöðvar og Ráðgjafar- og greiningarstöðvar sem á mikið erindi við fjölskyldur barna með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir.
Dagana 7.–8. maí fer fram vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar í samvinnu við Gló Æfingastöð undir yfirskriftinni: Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna og ungmenna.
Ráðstefnan leiðir saman fagfólk, foreldra, rannsakendur og aðra sem láta sig velferð barna varða og skapar vettvang fyrir miðlun þekkingar, samtal og mótun framtíðarsýnar um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Fjallað verður um það sem skiptir máli í daglegu lífi: hvernig við getum skapað aðstæður þar sem þau fá raunveruleg tækifæri til þátttöku.
Til þess þurfum við að víkka sýn okkar á þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra, – meðal annars með því að horfa til hinna svokölluðu F – orða í þroska og þátttöku barna og ungmenna.
Á ráðstefnunni verða fjölbreytt og áhugaverð erindi frá ólíkum sjónarahornum. Við erum meðal annars afar lánsöm að fá tvö erindi frá CanChild í Kanada, sem er leiðandi rannsóknarmiðstöð á þessu sviði. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica en einnig verður hægt að taka þátt í beinu streymi á netinu. Aðstandendur fá afslátt af ráðstefnugjaldi auk þess sem mörg stéttarfélög veita styrki fyrir þátttöku.
Hvað eru F-orðin í þroska og þátttöku barna og ungmenna?
F-orðin eru sex lykilhugtök sem hjálpa okkur að beina sjónum að því sem skiptir raunverulega máli fyrir þroska og þátttöku barna: Functioning (færni), Family (fjölskylda), Fitness (form), Fun (fjör), Friends (félagar) og Future (framtíð).
Þau hjálpa okkur að horfa á það sem barnið getur gert í stað þess að einblína fyrst og fremst á áskoranir og frávik. Jafnframt hvetja þau okkur til að hugsa á fjölbreyttan hátt um hvernig megi efla þroska barnsins og nýta styrkleika þess og fjölskyldunnar til framtíðar. Markmiðið er að styðja börn til þátttöku í fjölskyldulífi, leik, skóla og samfélagi – á eigin forsendum.
F-orðin eða The F-words for Child Development, voru sett fram af Dr. Peter Rosenbaum og Dr. Jan Willem Gorter hjá CanChild rannsóknarsetrinu í Kanada en þau byggja á skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunarinnar (WHO) á færni, fötlun og heilsu. Peter Rosenbaum mun sjálfur taka þátt í ráðstefnunni ásamt samstarfskonu sinn Rachel Teplicky.