Gló stuðningsfélag hefur verið til staðar fyrir fötluð börn og ungmenni á Íslandi í áratugi með fjölbreytt tómstundatækifæri og dvalir í Reykjadal og víðar þar sem ævintýri og þátttaka allra eru í forgrunni.

Vinátta og ævintýri

Frá 1963 hefur Reykjadalur verið mikilvægur vettvangur tómstunda og vináttu fyrir fötluð börn og ungmenni. Starfsemi Reykjadals nær yfir allt árið og árlega nýta sér um 500 fjölskyldur þjónustu Reykjadals, þörfin og áhuginn eru áþreifanleg og því er algengt að biðlistar séu langir. 
 

Markmið Reykjadals er að veita fötluðum börnum og ungmennum  það tækifæri að eiga val um að geta farið í sumarbúðir og eiga jákvætt og uppbyggjandi sumarfrí. Með sumarbúðastarfinu viljum við skapa ævintýri og styðja nýjar og gamlar vináttur. Í Reykjadal myndast frábær stemning í hverjum hópi og saman taka þátt bæði starfsfólk og gestir, á jafningjagrundvelli, að skapa skemmtilegasta sumarfríi sem sumarbúðagestir geta ímyndað sér.  

 

Í Reykjadal starfar kraftmikið og hugmyndaríkt starfsfólk sem leggur sig fram við að gera hverja dvöl einstaka og ógleymanlega. Þau styðja gestina hverju sinni, taka þátt í dagskrá með þeim og huga að líðan þeirra og heilsu. Starfsfólk Reykjadals er einstaklega hlýtt, ævintýragjarnt og ábyrgt þau eru einnig lausnarmiðuð og styðja þátttöku allra til samveru og leiks óháð hindrunum.  
 

Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn eiga rétt á leik, hvíld og menningu og þetta þrennt einkennir einmitt það að fara í sumarbúðir. Það að eignast vini á jafningjagrundvelli, kynnast náttúruparadísinni í Mosfellsdal og taka þátt í fjölbreyttri og valdeflandi afþreyingu er einkennandi fyrir starf Reykjadals. Enn fremur starfar Gló stuðningsfélag með Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks ávallt í fararbroddi.