Gló stuðningsfélag hefur haldið úti starfsemi í Reykjadal í Mosfellsdal frá árinu 1963 og skapað þar vettvang fyrir tómstundir, vináttu og öruggt samfélag fyrir fötluð börn og ungmenni.
Árið 1959 hóf félagið rekstur sumarbúða fyrir fötluð börn og fór starfsemin fyrstu árin fram í Reykjaskóla í Hrútafirði og Varmalandi í Borgarfirði. Árið 1963 festi félagið kaup á Reykjadal í Mosfellsdal og tryggði starfseminni varanlegt heimili – ákvörðun sem átti eftir að móta Reykjadal sem vettvang tómstunda, vináttu og ævintýra fyrir öll.
Á upphafsárunum komu bæði fötluð og ófötluð börn í sumarbúðir í Reykjadal. Sumarið 1973 urðu straumhvörf þegar hið opinbera hóf að styrkja starfsemina með umönnun fyrir 30 börn. Eftir það varð starfsemin markvissari og sniðin að þörfum fatlaðra barna, með auknum stuðningi og athygli fyrir hvert barn.
Í dag koma yfir 200 börn og ungmenni í sumarbúðirnar í Reykjadal í Mosfellsdal á hverju sumri. Samhliða hefur starfsemin vaxið og þróast, með fjölbreyttu starfi fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í Reykjadal og víðar um landið. Það sem hófst sem lítil sumardvöl er orðið að öflugri starfsemi með skýra sýn: að tryggja raunveruleg tækifæri til þátttöku og vináttutengsla.
Starfsemi allt árið
Til að byrja með var Reykjadalur aðeins starfræktur að sumarlagi en árið 1990 hófst regluleg starfsemi að vetrarlagi um helgar, Vetrardvalir Reykjadals – sem festu starfsemina enn betur í sessi sem heilsárs samfélag.
Haustið 1969 hóf félagið rekstur heimavistarskóla fyrir fötluð börn í Reykjadal. Skólinn mætti þörfum fatlaðra barna með miklar stuðningsþarfir sem gátu ekki stundað sinn hverfisskóla. Árið 1975 var skólakerfið loks reiðubúið að taka við nemendahópnum þegar stofnuð var sérdeild fyrir fötluð börn í Hlíðaskóla í Reykjavík. Í dag byggir íslenskt skólakerfi á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar þar sem markmiðið er að öll börn fái að stunda nám í sínu nærumhverfi með viðeigandi stuðningi. Þróunin sýnir að félagið brást snemma við brýnni þörf og átti þátt í þeirri vegferð sem síðar varð grunnur að auknum mannréttindum fatlaðs fólks.
Sundlaugin – hjartað í Reykjadal
Sundlaug var tekin í notkun árið 1965 og hafa sund og leikur í vatni frá fyrstu tíð verið stór hluti af upplifun, gleði og samveru í Reykjadal.
Ný sundlaug var vígð árið 1994 og reyndist mikil lyftistöng fyrir staðinn. Söfnun fyrir byggingu hennar hófst árið 1989 og sýndi þann sterka stuðning sem starfsemin naut. Samfélagið stóð aftur saman árið 2024 og safnaðist yfir 22 milljónum króna til að hefja viðgerðir og endurbætur á lauginni – skýr vitnisburður um þann stuðning og traust sem Reykjadalur nýtur enn í dag.
Kraftur sjálfboðaliða og samfélags
Kvennadeild félagsins, sem nú er hætt starfsemi, gegndi lykilhlutverki í uppbyggingu Reykjadals. Með ómetanlegu framlagi sínu í gegnum áratugi lagði deildin grunn að þeirri starfsemi sem blómstrað hefur á staðnum – og óhætt er að segja að án hennar hefði sagan orðið önnur.
Framlag félaga í Kiwanisklúbbnum Viðey var einnig afar mikilvægt. Stærsta átaksverkefni klúbbsins var söfnun fyrir byggingu sundlaugarinnar í Reykjadal. Með samstilltu átaki og stuðningi almennings tókst að safna nær tveimur þriðju hlutum byggingarkostnaðar laugarinnar.
Í dag stendur öflug stuðningssveit að baki Reykjadal – Vinir Reykjadals – sem leggja mánaðarlega sitt af mörkum til að tryggja áframhaldandi starfsemi og uppbyggingu í Reykjadal. Viltu gerast Vinur Reykjadals og taka þátt í að tryggja áframhaldandi tækifæri, vináttu og ævintýri?