Vissir þú að stuðningur við okkur getur líka lækkað skattana þína?
Hvort sem þú styður Gló stuðningsfélag, Gló Æfingastöð eða Reykjadal með stöku framlagi eða reglulegum mánaðarstyrk í gegnum Vini Reykjadals getur þú fengið afslátt hjá Skattinum.
Hvernig virkar þetta?
Gló er skráð á almannaheillaskrá Skattsins og uppfyllir því öll skilyrði fyrir skattafrádrætti.* Við sjáum um að skrá framlögin hjá Skattinum fyrir þig og þær upplýsingar birtast sjálfkrafa í skattframtali þínu. Það eina sem þú gerir er að styrkja – við sjáum um rest.
Hversu mikið má draga frá?
- Ef samanlögð framlög þín til góðgerðarfélaga eru meiri en 10.000 kr. á ári getur þú dregið þau frá skattstofni.
- Einstaklingar geta talið fram styrki fyrir á bilinu 10.000–350.000 kr. á ári.
- Fyrir hjón eða sambúðarfólk er samanlagt hámark 700.000 kr. á ári.
- Frádrátturinn getur leitt til lægri skattgreiðslna eða endurgreiðslu.
Fyrirtæki
Fyrirtæki geta einnig nýtt skattaafslátt af gjöfum til Gló samkvæmt gildandi reglum. Til þess þarf einfaldlega að hafa kvittun sem sýnir fram á gjöfina.
Dæmi um hvernig skattaafslátturinn virkar*
| Mánaðarlegt framlag | Heildarframlag á ári | Skattaafsláttur | Raunkostnaður |
|---|---|---|---|
| 1.000 kr. | 12.000 kr. | 4.554 kr. | 7.446 kr. |
| 2.500 kr. | 30.000 kr. | 11.385 kr. | 18.615 kr. |
| 4.000 kr. | 48.000 kr. | 18.216 kr. | 29.784 kr. |
| 10.000 kr. | 120.000 kr. | 45.540 kr. | 74.460 kr. |
Mikilvægt að hafa í huga
- Aðeins styrkir (gjafir) veita rétt til skattaafsláttar.
- Greiðslur fyrir vörur eða þjónustu, til dæmis kaup í vefverslun, teljast ekki frádráttarbærar.
* Heimild: 7. tölul. A-liður 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Skilyrði er að félagið starfi til almannaheilla og sé skráð á almannaheillaskrá Skattsins. Gló er skráð á almannaheillaskrá Skattsins.
** Í dæmum er miðað við tekjuskattshlutfall meðaltekna (37,95%). Tekjuskattshlutfall er breytilegt eftir tekjum.