Mikilvægt er að umsóknin sé vandlega og samviskusamlega útfyllt hverju sinni. Athugið að ekki þarf að sækja sérstaklega um helgardvöl vorið 2027. Umsókn um helgardvöl haustið 2026 gildir einnig fyrir vorönnina.
Í vetrardvölum Reykjadals er tekið á móti börnum og ungmennum 25 ára og yngri. Raðað er í hópa með hliðsjón af aldri, vinatengslum og öðrum þáttum sem stuðla að góðri dvöl. Ef gestur er að koma í Reykjadal í fyrsta skipti höfum við samband til að fá nánari upplýsingar og undirbúa dvölina sem best.
Verð fyrir hverja helgardvöl er 25.000 kr. fyrir gesti undir 18 ára og hægt er að nýta frístundastyrk sveitarfélaga. Verð fyrir 18 ára og eldri er 30.000 kr.
Umsóknarfrestur er til og með 1. september.
Ef þið hafið einhverjar spurningar er ykkur velkomið að hafa samband í síma 566 6234 eða í netfang: reykjadalur@glofelag.is 🧡