Það styttist í sumarið - nú er opið fyrir umsóknir í Ævintýrabúðir Reykjadals!
Mennta- og barnamálaráðuneytið heldur áfram að styðja við verkefnið <3
Athugið að mikilvægt er að umsóknin sé samviskusamlega útfyllt fyrir 19. apríl 2026.
Í sumar verða sumarbúðirnar haldnar á tveimur stöðum eftir aldri þátttakenda. Yngri hópurinn verður á Reykjum í Hrútafirði í júní og eldri hópurinn verður á Úlfljótsvatni í júlí.
Sumarbúðirnar eru fyrir börn fædd á árunum 2010-2018 með adhd og/eða einhverfu og eru einnig með stuðningsþarfir.
Í Reykjadal er hugmyndafluginu sleppt lausu og þar er haft að leiðarljósi að ekkert sé ómögulegt. Lögð er áherslá á það að öll sem þangað sækja fái að njóta sín á eigin forsendum og skemmti sér í góðra vina hópi í metnaðarfullri dagskrá.
Þetta árið getum við boðið upp á 5 daga dvöl og kostar dvölin 44.500 kr.
Úthlutun mun fara fram í lok apríl 2026 og kemur í tölvupósti.
Ef eitthvað er óljóst má hafa samband með tölvupósti á reykjadalur@glofelag.is