Vinahópar Reykjadals: Fullorðinsfrí með Reykjadal 2026
Sjöunda árið í röð stendur fullorðnu fötluðu fólki til boða að koma í sumarfrí að hætti Reykjadals. Verkefnið er styrkt af félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu líkt og fyrri ár. Þetta árið bjóðum við ungu fólki á aldrinum 20 ára til 30 ára að taka þátt í verkefninu (árgangar 1996 til og með 2006)
Reykjadalsstemningin verður ríkjandi, óvissuferðir, kvöldvökur og fleira skemmtilegt með hópi af fólki sem þú tengir við
Markmiðið er að efla öll í hópnum að taka þátt í skipulaginu og sjá afreksturinn með vinahópnum síðar um sumarið.
Við horfum til vináttu þegar við röðum í hópana og gerum okkar besta að svara óskum ykkar.
Umsóknarfrestur er 19. apríl 2026 og úthlutun mun fara fram stuttu seinna.
Dvölin sjálf verður 3 nætur í júní/júlí/ágúst 2026.
Verð í fríið er 49.000kr með öllu inniföldu. Takmörkuð pláss eru í boði.
Þvílíkt sem við erum spennt að hitta Reykjadalskempurnar okkar <3
Það má heyra í forstöðufólki í síma: 5666234 eða í gegn um reykjadalur@glofelag.is
Vinsamlegast fyllið umsóknarformið samviskusamlega út.