Til baka
Jólaóróinn

Jólaóróinn 2020 - Bjúgnakrækir

Verð
5.500 kr.
Utan sölutímabils

Jólaóróinn 2020 er Bjúgnakrækir eftir Sigga Odds og kvæði eftir Þórdísi Gísladóttur, rithöfund. 

Allur ágóði af sölunni rennur starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Jólaóróinn er framleiddur í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.

Bréf til Bjúknakrækis

Kæri Bjúgnakrækir!
Ég vil vara þig við,
nútíminn gæti valdið vonbrigðum.

Þú finnur hvergi reykfyllt rjáfur
þar sem bjúgu
hanga í loftbitum.

Fyrr rekst þú á flatbökur,
grænkerakrásir og franskar kartöflur
en uppáhaldsmatinn þinn.

En treystu mér
og taktu nú eftir,
ég vil trúa þér fyrir dálitlu.

Þú munt kætast
ef þú laumast
inn í kæliklefa kjörbúðar.
Þar leynast bjúgu í lofttæmdum umbúðum
og handhægum bökkum sem hita má í örbylgjuofni.

Og bestu fréttirnar eru þær
að sumar búðir eru opnar allan sólarhringinn.

Þórdís Gísladóttir