Kærleikskúlan
Kærleikskúlan 2005
Verð
8.900 kr.
Utan sölutímabils
ÁN UPPHAFS - ÁN ENDIS eftir Rúrí er Kærleikskúla árins 2005.
Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Gló í Reykjadal. Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.
eftir Rúrí
ÁN UPPHAFS - ÁN ENDIS
Orðin vísa til þess að kærleikurinn á sér hvorki upphaf né endi. ...
Hann er óskilyrtur - óendanlegur - hann er.
Eins er með fossinn - hann rennur án afláts– hann er.
Fullkomin kúla hefur hvorki upphaf né endi, á sama hátt og hnötturinn okkar, Jörðin, er ein samfelld heild.
Einn af hinum máttugu fossum landsins birtist í brothættu, svífandi listaverkinu, sem örsmáum heimi, sem aftur kallast á við og speglar alheim þar sem jörðin svífur um í ómælisgeimi.
- Rúrí